Vín, drykkir og keppni
Vel heppnuð bjórhátíð á Hólum í Hjaltadal
Bjórhátíðin á Hólum í Hjaltadal, var haldin í áttunda skiptið í júní sl. Að þessu sinni voru 14 brugghús sem tóku þátt og hafa þau aldrei verið fleiri. Brugghúsin koma sum langar leiðir til að taka þátt í þessari helstu bjórhátíð landsins. Til dæmis, Beljandi frá Breiðdalsvík, Brother‘s Brewery í Vestmannaeyjum og Austri frá Egilsstöðum.
Á næsta ári er svo von á að brugghús frá Ísafirði og Húsavík bætist í hópinn, að því er fram kemur á facebook síðu bjórhátíðarinnar.

Hátíðin er líka mikil matarveisla og í boði voru heimagerðar Bratwurzt pylsur, ásamt „toguðum grís“ (e. pulled-pork), Pretzel og Argentískar lambasteikarlokur
Mikil matarveisla
Hátíðin er líka mikil matarveisla fyrir gesti, en eins og fyrr ár voru heimagerðar Bratwurzt pylsur á boðstólnum, ásamt „toguðum grís“ (e. pulled-pork). Pretzel-ið var auðvitað á sínum stað. Nú í ár bættist svo við matarframboðið, en argentískar lambasteikarlokur voru grillaðar ofan í hátíðargesti. Mikil og góð stemming var á meðal gesta, enda ekki hægt annað á meðan nægur bjór er til staðar og gnótt matar.
Eins og áður, þá kjósa hátíðargestir bestu þrjá bjóra hátíðarinnar. Að þessu sinni var það Bruggsmiðjan Kaldi sem átti besta bjórinn. Öldur fékk svo verðlaun fyrir 2. og 3. sætið. Öldur fékk einnig verðlaun fyrir besta básinn.
Efstu þrjú sætin voru eftirfarandi fyrir besta bjórinn:
1. Bruggsmiðjan Kaldi – Belgískur Triple
2. Öldur – Blámi (bláberjamjöður)
3. Öldur – Rjóð (kirsuberjamjöður)
Myndir: facebook / Bjórhátíðin á Hólum í Hjaltadal / Guðmundur Björn Eyþórsson
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun15 klukkustundir síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Keppni3 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Markaðurinn15 klukkustundir síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni16 klukkustundir síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanMetnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni
-
Markaðurinn2 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir








