Uppskriftir
Kjúklingaleggir og -vængir með HM
Kjúkling má elda á marga vegu og eru vængir og leggir vinsælir yfir sjónvarpinu þegar mikilvægir íþróttaleikir eru sýndir. Þessi uppskrift smellpassar fyrir Heimsmeistaramótið í fótbolta.
Gott er að hluta vængina niður með því að klippa á milli liðamóta og dýfa efri hlutanum í eina gerð af sósu og neðri hlutanum í kryddblöndu eða annars konar sósu. Svo er gott að framreiða með fersku íslensku hráu grænmeti.
Buffaló-sósa:
1 msk. ósaltað smjör, brætt
1/4 tsk. cayenne pipar
1/4 tsk. ferskt malaður svartur pipar
1/4 tsk. salt
1/4 bolli heit chili sósa (má blanda saman tómatsósu og chilisósu)
Aðferð
Blandið fyrstu fjórum innihaldsefnunum í miðlungsskál; látið standa í fimm mínútur. Hrærið í chili-sósu saman við eftir smekk.
Athugið að hægt er að gera þetta viku fram í tímann. Geymt í kæli.
Engifer-soja gljái:
1/4 bolli hunang
Tvær msk. sojasósa
3 stór hvítlauksrif, marin eða söxuð fínt
Tvisar sinnum eins sentimetra stykki af engifer, skrælt og sneitt niður
Aðferð
Öllum hráefnum blandað saman ásamt 1/4 bolla af vatni, látið sjóða í litlum potti. Hrærið til að leysa hunangið upp. Lækkið hitann alveg niður á minnsta straum, látið malla og hrærið öðru hvoru þar til vökvinn hefur minnkað í 1/4 bolla í um 7–8 mínútur. Setjið í skál. Látið sitja í 15 mínútur svo þetta þykkni aðeins.
Athugið að þetta er hægt að gera fimm daga fram í tímann. Setjið plastfilmu yfir svo ekki myndist skán.
Vængir:
1 pakki kjúklingavængir, endinn fjarlægður („kjuðaðir“) og efri vængir teknir í sundur og kryddaðir úr hvorri kryddblöndunni
2 msk. jurtaolía
1 msk. salt
1/2 tsk. ferskur malaður svartur pipar
Aðferð
Hitið ofninn að 200 gráðum. Setjið grind með bökunarpappír inn í ofn og bakka undir fyrir umfram safa. Setjið hvorn kryddlög hvorn í sína skálina. Dreifðu vængjunum á bökunarplötuna svo þeir festist ekki saman og bakist rétt og jafnt.
Bakið vængina þar til þeir eru full eldaðir og stökkir – gæti tekið 45–50 mínútur. En það þarf að snúa þeim og hugsa vel um að gljáinn brenni ekki.
Gott er að pensla með engifersósunni eða olíu og baka aðrar 8–10 mínútur.
Penslið helminginn aftur með buffalósósu. Berið fram strax (engin þörf á að baka aftur).
Hægeldaðir kjúklingaleggir með sætchili- og hnetusósu
Sæt chili- og engifersósa á einstaklega vel með með kjúklingi og auðvelt er að gera góðan asískan kjúklingarétt með slíkri sósu á stuttum tíma.
2/3 bolli af sætri sojasósu
2/3 bolli Thai sætri chilisósu
2 tsk. fiskisósa eða ostrusósa
Smá af ferskri engiferrót, skræld og hökkuð
2 pakkar kjúklingaleggir
Ferskur saxaður kóríander, til að skreyta með (valfrjálst)
Saxaðar hnetur, til að skreyta með (valfrjálst)
Aðferð
Í stórt ílát er sett sojasósa, sæt chilisósa, fiskisósa og engifer. Setjið kjúklinginn ofan í og blandið saman. Setjið það í kæli og látið kjúklinginn liggja í kryddinu í um þrjár klukkustundir eða yfir nótt. Þegar tilbúið er að elda, látið þá í ofn í um 150–170 gráður og látið bakast í gegn um klukkustund.
Penslið með ögn meiri sósu úr dallinum og stráið söxuðum hnetum, kasjú- eða salthnetum. Setjið grillið í gang í um þrjár mínútur á hvorri hlið og snúið einu sinni og penslið yfir með meiri sósu. Takið úr ofninum og skreytið með kóríander og meiri söxuðum hnetum, ef þess er óskað.
Gott að bera fram með þunnsneiddu grænmeti og radísum.
Höfundur er Bjarni Gunnar Kristinsson matreiðslumaður. Uppskrift þessi var birt í Bændablaðinu og er birt hér með góðfúslegu leyfi þeirra.
-
Vín, drykkir og keppni1 dagur síðan
Opnuðu 18 L kampavínsflösku í fyrsta sinn á Íslandi – Nýir eigendur Kampavínsfjelagsins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðan
Gulli bakari heiðraður sem kaupmaður ársins 2024
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðan
Mikil aukning á fölsuðu áfengi – IBA biðlar til allra barþjóna og veitingamenn að vera vel á verði
-
Uppskriftir5 dagar síðan
Ljúffengar og góðar fiskibollur
-
Keppni15 klukkustundir síðan
Myndir og vídeó frá matreiðslukeppni stjórnmálaflokkana – Sjáið úrslitin hér
-
Frétt4 dagar síðan
Upplýsingar til rekstraraðila í kringum Austurvöllinn
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Beittir hnífar: Svartur föstudagur – Viku tilboð
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Áramótabomba Churchill