Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Friðgeir hættir á Holtinu og opnar nýjan veitingastað á nýju ári
Friðgeir Ingi Eiríksson yfirmatreiðslumaður á Gallery Restaurant á Hótel Holti hefur ákveðið að hætta um áramótin næstkomandi og opna nýjan veitingastað Brasserie Eiriksson á nýju ári.
Friðgeir hefur starfað á Holtinu frá árinu 1997 með stuttu hléi (byrjaði sem matreiðslunemi) eða fimm ár á meðan hann var í Frakklandi.
Allir í veitingadeildinni á Holtinu fylgja Friðgeiri yfir á nýja staðinn. Mikill stöðugleiki hefur verið í eldhúsinu á Holtinu frá opnun þess þar sem sömu einstaklingar hafa sinnt þar störfum í langan tíma.
Það er því ljóst að mikil starfsreynsla er á leið frá Holtinu yfir á nýja staðinn, Eiríkur I. Friðgeirsson, Sara Dögg Ólafsdóttir, Sveinn Þorri Þorvaldsson, Hallgrímur Ingi Þorláksson og Marco Silva, en þetta telur um það bil 100 ár í starfsreynslu.
„Holtið hefur verið gott og verður alltaf gott, ég hef enga trú á öðru“
, sagði Friðgeir í samtali við veitingageirinn.is aðspurður um hvort að Holtið nái sér aftur á strik þegar öll þessi starfsreynsla hverfur.
Staðsetningin á Brasserie Eiriksson vildi Friðgeir ekki gefa upp að svo stöddu, en veitingageirinn.is mun fylgjast vel með og flytja ykkur fréttir af því síðar.
Brasserie Eiriksson verður í alþjóðlegum matargerðarstíl, og verður eitt og annað sér innflutt frá ítalíu, sagði Friðgeir í samtali við veitingageirinn.is.
„Vínseðillinn verður mjög stór og verður hann einn af sérstöðum hússins.“
Mynd: facebook / Hotel Holt – Gallery Restaurant
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanSlow Food á Íslandi heiðrar Dominique Plédel Jónsson
-
Keppni5 dagar síðanLeitað að bestu ostakökunni og brauðtertunni
-
Markaðurinn3 dagar síðanBeittir hnífar opna nýja vefverslun með opnunartilboðum
-
Starfsmannavelta15 klukkustundir síðanBrixton tekinn til gjaldþrotaskipta
-
Markaðurinn3 dagar síðanFljótlegur og bragðmikill taco-réttur fyrir fjölskylduna
-
Markaðurinn4 dagar síðanLóan komin og júnítilboðin hjá Nathan líka
-
Frétt16 klukkustundir síðanEldur kom upp í veitingastað á Selfossi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanFrá eldhúsinu til heimsfrægðar: Anthony Bourdain á hvíta tjaldið



