Frétt
Matvælaverð á heimsmarkaði heldur áfram að hækka
Heimsmarkaðsverð matvæla hækkaði um 1,9 prósent milli júlí og ágúst. Verð hækkaði í öllum fimm meginflokkum verðvísitölu Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAO.
Sykurverð hækkaði mest
Mest hækkaði sykurverð, eða um 11,9 prósent, og hefur það ekki verið hærra síðan í júní 2025. Hækkunin er meðal annars rakin til vaxandi óvissu af framboði á sykri á heimsmarkaði á framleiðslutímabilinu 2026–2027.
Kornverð hækkaði um 2,2 prósent og þar af hækkaði hveitiverð um 2,6 prósent milli mánaða. Verð á hveiti var 15 prósentum hærra en í ágúst í fyrra. Mikil eftirspurn, heitt og þurrt veður í hluta Evrópu og óvissa um útflutning frá Svartahafssvæðinu höfðu áhrif á þróunina.
Verð á mjólkurvörum hækkaði um 2,3 prósent, kjötverð um eitt prósent og jurtaolíur um 0,6 prósent. Verð á alifuglakjöti, svínakjöti og sauðfjárkjöti hækkaði, en nautakjötsverð lækkaði.
Bakarí og veitingastaðir gætu fundið fyrir hækkuninni
Vísitala matvælaverðs var 2,5 prósentum hærri en í ágúst á síðasta ári. Hún var þó enn 16,8 prósentum undir því hámarki sem mældist í mars 2022.
Þróunin gæti á næstu mánuðum haft áhrif á innkaupsverð bakaría, drykkjarframleiðenda, matvælafyrirtækja og veitingastaða, einkum þar sem sykur og hveiti vega þungt í framleiðslunni.
Nánar má lesa um verðvísitölu FAO hér.
Mynd: úr safni
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanArnór Ingi stefnir hátt með Laut – opnar fyrir kvöldverð á morgun
-
Markaðurinn6 dagar síðanSpennandi starf fyrir yfirmatreiðslumann í Stykkishólmi
-
Markaðurinn6 dagar síðanVillibráðarpaté með landsliði kjötiðnaðarmanna
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMyndir: Glæsilegt kampavínsboð á Apótekinu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanÞráinn Freyr tók á móti matreiðslumeisturum
-
Markaðurinn4 dagar síðanMyndir: Vel heppnað bakaranámskeið á vegum Bakels
-
Markaðurinn4 dagar síðanMatreiðslumeistarinn Kunsang Tsering Tamang með spennandi námskeið í Ramen-gerð hjá Iðunni fræðslusetri
-
Markaðurinn4 dagar síðanSvane – Hreinlæti með umhverfið í huga



