Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Íslenskur yfirkokkur á nýju hóteli í Noregi

Birting:

þann

Stotvig_Hotell_150920135

Hilmar Þór Harðarson

Hilmar Þór Harðarson

Stötvig Hotell er nýtt hótel við Larkollen fyrir miðjum Osló firðinum sem opnar 11. nóvember kl: 11:00 (11.11 – kl. 11).  Stötvig Hotell er strand hótel og verður mjög nýtískulegt undir áhrifum frá gömlu Oslófjarðar hótelunum og með örlitlu New England ívafi.  Hilmar Þór Harðarson hefur verið ráðinn sem yfirmatreiðslumaður hótelsins.

Hilmar er 31 árs gamall sjókokkur og matreiðslumaður, en hann útskrifaðist sem sjókokkur árið 2002, en það var kokkastarfið sem heillaði hann mjög svo, að hann ákvað að demba sér í að læra fagið.  Hilmar byrjaði að læra árið 2003 og lærði að megninu til á vox á hilton hótel og kláraði á síðan veitingastaðnum Á næstu grösum og útskrifaðist síðan árið 2008.

Hilmar hefur unnið á Saferlic í Nuuk í Grænlandi, Skinnarbu hótel í Telemark í Noregi, Thon hótel í Kristiandsund og starfaði sem yfirmatreiðslumaður á öllum þessum stöðum.

Hilmar vinnur nú hörðum höndum við undirbúning á matseðlum fyrir hótelið.

Hilmar vinnur nú hörðum höndum við undirbúning á matseðlum fyrir hótelið.

Stötvig Hotell hefur 91 herbergi og hafa svíturnar eitt magnaðasta útsýni enda Osló fjörðurinn með þeim fallegri.  Hótelið hefur 9 ráðstefnusali sem taka allt frá 12 manns og upp í 160 manns, en hægt er að opna milli sumra salana til að stækka þá.

Hótelið býður upp á fjölbreytta þjónustu, kvikmyndahús, heilsulind, kennslueldhús, bókasafn, vínkjallara, inni og úti sundlaug, einkaströnd og nokkra veitingastaði svo fátt eitt sé nefnt.

Stötvig Hotell fékk Skrímslið hans Steven Spielberg frá stórmyndinni Jaws.  Þessi risahákarl hefur síðustu árin verið í tívolíinu hjá Universal Studios  hefur nú fengið nýtt hlutverk og gnæfir yfir sundlaugina á hótelinu.

Stötvig Hotell fékk Skrímslið hans Steven Spielberg frá stórmyndinni Jaws. Þessi risahákarl hefur síðustu árin verið í tívolíinu hjá Universal Studios hefur nú fengið nýtt hlutverk og gnæfir yfir sundlaugina á hótelinu.

Stotvig_Hotell_150920133


View Larger Map

 

Nánari umfjöllun verður um matinn og hótelið þegar nær dregur ásamt því að birtar verða fleiri myndir.

 

Myndir: af facebook Stötvig Hotell.

Mynd af Hilmari: aðsend

/Smári

Taggaðu okkur á Instagram: #veitingageirinn og myndirnar birtast sjálfkrafa á forsíðunni.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið