Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

Jól 2022 – Hótel og veitingahús sem bjóða upp á jólahlaðborð og aðrar hátíðarkræsingar

Birting:

þann

Jólin Jóla - Gleðileg jól

Jólahlaðborð og jólamatseðlar sem veitingastaðir bjóða upp á er klárlega ómissandi hluti af jólaundirbúningnum. Veitingageirinn.is hefur heyrt í mörgum veitingamönnum og eru allir í skýjunum með frábærar viðtökur, en á mörgum stöðum eru komnir biðlistar eftir jólahlaðborði.

Hér að neðan finnur þú hátíðarkræsingar sem að hótel og veitingahús bjóða upp á í ár.

Athugið að þessi listi er ekki tæmandi!
(Sendu okkur línu og við bætum þér á listann: [email protected] eða í gegnum þetta form)

Jólahlaðborð á Hótel Reykjavík Grand

Jólahlaðborð á Hótel Reykjavík Grand

Úlfar Finnbjörnsson yfirmatreiðslumeistari á Hótel Reykjavík Grand verður með glæsilegt jólahlaðborð.  Athugið að einungis laus borð 19. nóvember, allir aðrir dagar eru fullbókaðir.

Sjá nánar hér.

Jólahlaðborð á Stykkishólmi

Jólahlaðborð á Fosshótel Stykkishólmi

Fosshótel Stykkishólmur verður í sannkölluðu hátíðarskapi og býður upp á glæsilegt jólahlaðborð á völdum dögum aðventunnar. Eigðu einstaka hátíðarstund með fjölskyldu, vinum eða vinnufélögum. Aðeins um tveggja tíma akstur frá Reykjavík í jólabæinn Stykkishólm.

Sjá nánar hér.

Jólaveisla í Mývatnssveit

Veitingastaðurinn Eldey á Hótel Laxá býður upp á sannkallaða jólaveislu.  Sjá nánar á facebook síðunni þeirra hér.

Hátíðarmatseðill á veitingastaðnum Aurora

Veitingastaðurinn Aurora

Veitingastaðurinn Aurora á Akureyri býður upp á sérstakan hátíðarseðil alla daga frá 18. nóvember, bæði í hádeginu og á kvöldin. Hægt er að panta borð á Dineout.is hér.

Veisluþjónusta - Banner

Fjögurra rétta jólaseðill á Mývatni

Fosshótel Mývatn

Fosshótel Mývatn

Á Fosshótel Mývatni er boðið upp á fjögurra rétta jólaseðill ásamt mjög góðu tilboði á gistingu, sem sjá má hér.

Jólaseðill

  • Villisveppasúpa
  • Jóla forréttaplatti
  • Val á milli Kalkúnabringu og Bleikju í aðalrétt
  • Kanil panna cotta og jólasmákökur

Sel-Hótel með glæsilegt jólahlaðborð

Sel-Hótel með glæsilegt jólahlaðborð

Sel-Hótel á Skútustöðum í Mývatnssveit býður upp á glæsilegt jólahlaðborð. Bókanir á [email protected]

Jólaseðill Jómfrúarinnar

Jólaseðill Jómfrúarinnar

Smellið á myndina til að stækka

Aðventuheimsókn á Jómfrúna er löngu orðin hefð hjá mörgum. Jómfrúin leggur mikið upp úr jólamatseðlinum og býr til gómsæta jólaplatta sem passa fullkomlega með góðum snafs.  Jómfrúin er staðsett við Lækjargötu 4 í Reykjavík.

Jólaveisla á Reykholti

Fosshótel Reykholt er staðsett á friðsælum stað í Borgarfirði

Fosshótel Reykholt er staðsett á friðsælum stað í Borgarfirði

Fosshótel Reykholt býður upp á sannkallaða jólaveislu ( sjá matseðil hér) ásamt mjög góðu tilboði á gistingu, sem sjá má hér.

Jólavillibráðarseðillinn á Fiskmarkaðnum og Uppi vínbar

Jólavillibráðarseðillinn á Fiskmarkaðnum og Uppi vínbar

Jólavillibráðarseðillinn á Fiskmarkaðnum er sívinsæll hjá matgæðingum enda fléttast þar saman villibráð, jólaleg hráefni og einstök sýn úrvalskokka og matreiðslufólks sem og gómsæt vín sem búa til litlar sprengingar á bragðlaukunum.

Á matseðlinum er meðal annars villibráðarpaté, grafinn villtur lax, sushi með hreindýrakjöti, villt önd og krónhjörtur sem einnig er hægt að njóta á Uppi vínbar.

Nánari upplýsingar og matseðla má sjá á fiskmarkadurinn.is.

Jólamatseðill á Hótel Keflavík

Hótel Keflavík

Hótel Keflavík.
Undanfarin þrjú ár hefur hótelið allt verið tekið í gegn að innan og utan.

Jólin byrja þann 25. nóvember á Hótel Keflavík. Þá verður byrjað að bjóða upp á sérstakan jólamatseðil og vegan jólamatseðil. Lifandi tónlist skapar ljúfa jólastemningu meðan gestir njóta matarins.

Á hverju ári teflir Óli Már Erlingsson yfirkokkur fram nýjum og spennandi jólamatseðli og árið í ár er engin undantekning, en matseðilinn er hægt að skoða með því að smella hér.

Jólahlaðborð á Fosshótel Húsavík – ATH: Fullbókað

Jólahlaðborð á Fosshótel Húsavík

Það er greinilegt að jólahlaðborðið á Fosshótel Húsavík er vinsælt, en uppselt er á alla dagana sem að jólahlaðborðið er í boði.  Sjá nánar hér.

Kokkasveitin er klár fyrir jólahlaðborðsvertíðina

Nomy strákarnir

Ein öflugasta kokkasveit landsins.
F.v. Fannar Vernharðsson, Jóhannes Steinn Jóhannesson og Bjarni Siguróli Jakobsson

Nomy veisluþjónusta býður upp á jólahlaðborð fyrir veislur af öllum stærðum og gerðum. Hægt er að velja á milli hefðbundins jólahlaðborðs fyrir stóra hópa og einfaldara hlaðborðs fyrir minni hópa sem kemur tilbúið á staðinn.

Jóhannes Steinn Jóhannsson og félagar hans úr kokkasveit Nomy, þeir Bjarni Siguróli Jakobsson og Fannar Vernharðsson, eru svo sannarlega komnir í startholurnar fyrir jólahlaðborðs-vertíðina.

Sjá nánar á veflóðinni www.nomy.is.

Veisluþjónusta - Banner

Jólahlaðborð Rauða Hússins

Jólahlaðborð Rauða Hússins

Jólahlaðborð Rauða Hússins 2022 verður haldin um helgar frá miðjan nóvember fram að miðjan desember.  Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast með því að smella hér.

Fimm tegundir af af jólahlaðborðum

Veisluþjónustan Kokkarnir

Veisluþjónustan Kokkarnir býður upp á 5 mismunandi tegundir af jólahlaðborðum ásamt frábærum valmöguleikum fyrir þá sem velja vegan. Hægt er að panta jólahlaðborðin með því að senda tölvupóst á [email protected].

Jólahlaðborð á Stracta hóteli

Jólahlaðborð á Stracta hóteli

Stracta hótel á Hellu verður með jólahlaðborð í nóvember og desember þar sem boðið er upp á ljúffengar veitingar. Hilmar Þór Harðarson matreiðslumeistari og aðstoðarhótelstjóri á Stracta segir að lagt verður áhersla á öðruvísi jólahlaðborð og er allt unnið frá grunni.  Nánari upplýsingar hér.

Jólahlaðborð á Bryggjunni Brugghúsi

Bryggjan Brugghús

Jólaveislan á Bryggjunni Brugghúsi hefst fimmtudaginn 17. nóvember og stendur til og með laugardeginum 10. desember.  Sjá nánar hér.  Ath. að nánast allar helgar eru uppbókaðar.

Miðjarðarhafs jólaseðill á El faro

El Faro - Spænskur veitingastaður á Lighthouse Inn hótelinu við Garðskaga

Dags daglega býður El Faro upp á bragðgóðan spænskan og Miðjarðarhafsmat og Tapas með fersku íslensku hráefni

2. desember 2022 mun veitingastaðurinn El faro, sem staðsettur er við Norðurljósavegi 2 í Suðurnesjabæ, keyra í gang spennandi Miðjarðarhafs Jólaseðil.  Fylgist með á facebook síðu El faro hér.

Jólakvöld Einsa Kalda

Einsi kaldi

Jólakvöld Einsa Kalda í Vestmannaeyjum hefjast 25. nóvember 2022. Nánari upplýsingar á facebook síðu Einsa Kalda hér.

Jólin á Sjálandi

Sjáland

Fjölbreytt jóladagskrá verður í boði á veitingastaðnum Sjáland.  Allar nánari upplýsingar hér.

Jólaveisla Slippsins

Slippurinn

Slippurinn í Vestmannaeyjum býður upp á jólaveislu fyrstu helgina í desember.  Nánari upplýsingar á facebook síðu Slippsins hér.

Leyfðu bragðlaukunum að njóta á GOTT

Leyfðu bragðlaukunum að njóta á GOTT

Siggi Gísla matreiðslumeistari og eigandi veitingastaðarins Gott í Vestmannaeyjum byrjar að elda jólaseðilinn 25. nóvember 2022.  Klárlega möst að skoða.

Tryggðu þér sæti á gott.is.

Jólahlaðborð Edinborg Bístró

Jólahlaðborð Edinborg Bístró

Jólahlaðborð Edinborg Bístró á Ísafirði verður í boði 9. og 10. desember. Því miður er uppselt 10. des, en ekki örvænta það eru nokkur sæti laus föstudaginn 9. desember.

Vinsæla Ameríska jólahlaðborðið snýr aftur a Haust Restaurant

Amerískt jólahlaðborð - Veitingastaðurinn Haust

Hluti af köldu réttunum á ameríska jólahlaðborðinu.
Mynd: facebook / Haust

Njóttu töfrandi stunda á alvöru amerísku jólahlaðborði alla daga frá 18. nóvember til 1. janúar 2023.  Sjá nánar hér.

Njóttu töfra Suðurlands með gistingu og jólahlaðborði á Hótel Kötlu

Njóttu töfra Suðurlands með gistingu og jólahlaðborði á Hótel Kötlu - Hótel Katla

Boðið er upp á sértilboð á gistingu með margrómaða jólahlaðborði á Hótel Kötlu.  Sjá nánar hér.


Úttekt á hótel- og veitingastöðum - Veisluþjónusta

Athugið að þessi listi er ekki tæmandi!
(Sendu okkur línu og við bætum þér á listann: [email protected] eða í gegnum þetta form)

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið