Kokkalandsliðið
Íslenskt sjávarfang og lambakjöt kynnt í Berlín
Íslenskt sjávarfang og lambakjöt verða í aðalhlutverki í fjölmennri matarveislu sem haldin verður í húsakynnum þýsku verslunarkeðjunnar Frischeparadies í Berlín þann 1. september nk.
Veislan er liður í kynningarátaki Frischeparadies á ferskum íslenskum hágæða afurðum sem stendur yfir í septembermánuði. Íslandsstofa og sendiráð Íslands í Berlín eru samstarfsaðilar Frischeparadies í þessari kynningu. Markmiðið er að kynna íslenskt hráefni og vekja almenna athygli á Íslandi og íslenskri matarmenningu.
Boðið verður upp á sjö rétta matseðil þar sem fimm réttir eru úr íslensku hráefni og mun Þráinn Freyr Vigfússon, núverandi þjálfari íslenska kokkalandsliðsins og matreiðslumaður ársins árið 2007, elda einn þessara rétta. Hina réttina elda þekktir þýskir matreiðslumenn. Nú þegar er uppselt í matarveisluna sem rúmar 300 manns og er þar um að ræða bæði boðsgesti auk almennings.
Í verslunum Frischeparadies er boðið upp á hágæða hráefni þar sem megináherslan er á kældar og ferskar afurðir, mest sjávarfang og kjöt. Frischeparadies er einnig stór dreifingaraðili á ferskum og kældum afurðum til þýskra smásölukeðja. Fyrirtækið hefur um all nokkurt skeið valið ferskar sjávarafurðir frá Íslandi sökum hreinleika, gæða og ábyrgrar nýtingar á fiskistofnum hér við land. Keðjan er aðili að markaðsverkefninu Iceland Responsible Fisheries. Lambakjötið er nýjung í framboði þeirra og verða afurðir frá SAH á Blönduósi til sölu í verslunum þeirra í sjö borgum í Þýskalandi og í verslun þeirra í Vín í Austurríki næstu fjóra mánuði. Allt fiskmetið í veislunni (humar, bleikja og þorskur) kemur frá Iceland Seafood International en fyrirtækið er með söluskrifstofu í Hamborg.
Samhliða heimsókn sinni til Berlínar mun Þráinn Freyr elda íslenskan þorsk í matreiðsluþættinum Berlin Kocht. Sendiherra Íslands í Þýskalandi, Gunnar Snorri Gunnarsson, mun vera Þráni til halds og trausts í útsendingunni og kynna íslenskar matvörur fyrir þýskum matgæðingum en um 180 þúsund Berlínarbúar horfa vikulega á þáttinn.
Greint frá á vef Íslandsstofunnar.
Mynd: Aðsend
Taggaðu okkur á Instagram: #veitingageirinn og myndirnar birtast sjálfkrafa á forsíðunni.
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanMakona er nýr veitingastaður við Borgartún 26: Myndir frá opnunarhátíð staðarins
-
Markaðurinn1 dagur síðanRational í 50 ár og árið 2025 metár á Íslandi
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanHótel og matvælaskólinn endurtekur Meistaradaginn með nýrri áherslu
-
Food & fun3 dagar síðanMatarhátíðin Food & Fun fer fram í 23. sinn
-
Markaðurinn4 dagar síðanMánaðartilboð febrúar 2026: kjöt fyrir bolludag, sprengidag og öskudag
-
Markaðurinn2 dagar síðanMyndir: Peter De Wandel heimsótti Garra og kynnti nýjungar frá Ardo
-
Markaðurinn2 dagar síðanBragðmikil taco súpa með cheddar og sýrðum rjóma
-
Markaðurinn1 dagur síðanMinnkum matarsóun




