Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Nýir veitingamenn taka við veitingarekstrinum í Hannesarholti af Sveini Kjartanssyni

Veitingamennirnir Ómar Stefánsson og Jónas Oddur Björnsson handsala samning um veitingarekstur í Hannesarholti við Ragnheiði Jónsdóttur, stofnanda Hannesarholts.
Nú vikunni tóku þeir Jónas Oddur Björnsson og Ómar Stefánsson mateiðslumenn við veitingarekstrinum í Hannesarholti. Jónas starfaði nú síðast á Vox og Ómar á Dill á Hverfisgötu 12 en þessir ungu menn eru með mikla reynslu bæði innanlands og utan.
Ómar og Jónas leita í íslenska náttúru og innblástur að utan í matargerð en báðir hafa starfað á nokkrum af bestu veitingahúsum í Kaupmannahöfn og víðar. Þeir eru í nánu samstarfi við íslenska bændur og framleiðendur og vinna eftir hugmyndafræði Slow food samtakanna.
Matseðill vikunnar í Hannesarholti sem að Jónas og Ómar settu saman er eftirfarandi:
Hannesarholts salatið
Íslenskt salat og kryddjurtir frá Bjarna á Reykjum, egg og radísur
1.650.-kr
Blómkálssúpan okkar
Blómkál, kotasæla og brúnað smjör
1.490.-kr
Grillað brauð
Hægeldað andalæri, beikon, sultaður laukur, skessujurt og salat
2.200.-kr
Saltfiskur frá Elvari á Hauganesi
Rófur í áferðum og kryddjurtir
2.750.-kr
Hreindýr að austan
Hreindýrabollur, nýjar kartöflur, mjúkur laukur, rauðbeður og bráðið smjör
2.850.-kr
Fyrir grænmetisunnendur
Grænmeti úr Reykjadal, kryddjurtakrem, stökkt bygg,
2.450.-kr
Auka meðlæti
#1 Blandað salat, sósa og sultaður laukur 890.-kr
#2 Stappaðar nýjar kartöflur með kryddjurtasmjöri 890.-kr
Lokað var laugardag og mánudag s.l. vegna breytinga og er nú opnunartíminn frá kl.11-18 alla daga.
Ætla að einbeita mér að reka AALTO bistró í Norrænahúsinu og veisluþjónustu AALTO, er með þjónustu bæði innan hús og út úr húsi. Nóg a gera í því og er byrjaður að bóka aðventuveislur. Einnig stefni ég á að halda matreiðslunámskeið strax eftir áramót
, sagði Sveinn Kjartansson í samtali við veitingageirinn.is aðspurður um hvað tekur við, en Sveinn var með veitingareksturinn í Hannesarholti í eitt ár og hét sá staður Borðstofan. Sveinn Kjartansson útskrifaðist sem matreiðslumaður frá Hótel- og veitingaskóla Íslands árið 1985, en hann tók við rekstri nýja veitingastaðnum AALTO Bistro í Norræna húsinu 10. maí s.l.
Myndir: hannesarholt.is

-
Markaðurinn20 klukkustundir síðan
Veitingastaður á Arnarstapa til sölu – einstakt tækifæri í töfrandi umhverfi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðan
Pizzabakarinn opnar á Siglufirði – Theodór Dreki: „Við hættum ekki fyrr en pizzan var fullkomin“
-
Starfsmannavelta3 dagar síðan
Harry tekur við rekstri Nauthóls – Tómas og Sigrún kveðja eftir níu dásamleg ár
-
Keppni10 klukkustundir síðan
Brauðtertukeppni fyrir fagmenn – Skráning í fullum gangi til 17. apríl
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Valinn borðbúnaður frá Churchill og Dudson með sérstökum viðbótarafslætti
-
Starfsmannavelta2 dagar síðan
Nýr veitingastjóri á Strikinu – Elísabet Ingibjörg tekur við keflinu
-
Frétt1 dagur síðan
Hilton Nordica og Reykjavík Natura fá nýjan rekstraraðila og andlitslyftingu
-
Markaðurinn5 klukkustundir síðan
Thule bjórinn vinnur brons í European Beer Awards