Smári Valtýr Sæbjörnsson
Veitingastaðurinn Hornið 35 ára í dag
Hjónin Jakob Hörður Magnússon og Valgerður Jóhannsdóttir opnuðu Hornið, ítalskan veitingastað, við Hafnarstræti 15 í miðbæ Reykjavíkur fyrir 35 árum í dag.
Aðspurður segir Jakob Hörður að velgengni staðarins stafi af vinnusemi, góðu starfsfólki og ánægðum kúnnum, að því er fram kemur í Fréttablaðinu í dag.
Á þeim 35 árum sem veitingahúsið hefur verið rekið finnst Jakobi þróunin í veitingastaðaflórunni í miðbænum sem og hin stóraukna umferð ferðamanna um landið áhugaverð.
Segja má að Hornið hafi unnið mikilvægt frumkvöðlastarf hvað ítalska matreiðslu varðar.
Allir þessir pastaréttir, lasanja og fleira, fólk vissi varla hvað þetta var. Svo var þetta náttúrulega fyrsti staðurinn sem var með pitsur sem voru bakaðar beint fyrir framan gestina
, segir Jakob í samtali við Fréttablaðið.
Matseðill Hornsins hefur ekki breyst mikið gegnum árin. Þó fannst landsmönnum matreiðslustíllinn ítalski heldur nýstárlegur við tilkomu staðarins.
Sumir réttirnir hafa eflaust komið landanum heldur spánskt fyrir sjónir, en þar má helst nefna snigla í hvítlaukssmjöri.
Gestum Hornsins verður boðið upp á ítalska tíramísú-afmælisköku í eftirrétt í tilefni 35 ára áfangans.
Greint frá í Fréttablaðinu.
Mynd: Smári
![]()
-
Markaðurinn5 dagar síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Markaðurinn4 dagar síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Keppni1 dagur síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Frétt7 dagar síðanStærsti matarviðburður landsins fram undan í Hljómskálagarðinum
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanSkúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur
-
Markaðurinn14 klukkustundir síðanInnnes auglýsir spennandi sölustarf



