Markaðurinn
Jólagjöfin sem fær fólk út að njóta
Dineout gjafabréfin hafa á undanförnum árum fest sig í sessi sem vinsæll valkostur þegar fyrirtæki velja jólagjafir fyrir starfsfólk sitt. Gjafabréfin gilda nú á yfir 400 stöðum vítt og breitt um landið og bjóða upp á fjölbreyttar upplifanir, allt frá góðum bröns yfir í kvöldverð, gistingu eða sælkeravörur. Að baki gjafabréfunum er einföld hugmynd: að gefa fólki frelsi til að njóta á sinn hátt.
„Við viljum hvetja fólk til að fara út, njóta og skapa góðar minningar. Stundum er besta gjöfin einfaldlega tilefni til að gera eitthvað skemmtilegt, hvort sem það er kvöldverður með makanum, bröns með vinum eða ísferð með fjölskyldunni,“
segir Inga Tinna, framkvæmdastjóri Dineout.
Hún segir það sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu fjölbreytt úrval staða sé orðið hluti af Dineout gjafabréfinu. Þar sé að finna bæði rótgróna veitingastaði og nýja staði sem bjóða upp á ólíkar upplifanir.
„Það er svo margt spennandi að gerast í íslenskri veitingamenningu og okkur finnst mikilvægt að fólk fái tækifæri til að kynnast þeirri fjölbreytni. Með gjafabréfinu getur fólk farið á sinn uppáhaldsstað eða nýtt tækifærið til að prófa eitthvað alveg nýtt,“
segir Inga Tinna.
Ein jólagjöf sem hentar ólíkum einstaklingum
Fyrirtæki standa oft frammi fyrir þeirri áskorun að velja jólagjöf sem gleður fjölbreyttan hóp starfsfólks. Með Dineout gjafabréfinu fær hver og einn frelsi til að velja hvernig gjöfin nýtist, á meðan fyrirtækin geta sett sinn svip á gjöfina og gert afhendinguna persónulega
Embla Hallfríðardóttir, deildarstjóri sölu hjá Dineout, segir segir fyrirtæki leggi sífellt meiri áherslu á að jólagjöfin sé bæði persónuleg og þægileg í framkvæmd.
“Við finnum að fyrirtæki vilja gefa starfsfólkinu gjöf sem veitir gleði og skapar minningar, en um leið vilja þau geta sett sinn svip á gjöfina. Við getum séð um að útfæra hana í þeirra stíl, hvort sem það er með fallegri gjafaöskju eða rafrænni afhendingu með persónulegri jólakveðju.
Þannig verður þetta ekki bara hefðbundið gjafabréf, heldur persónuleg jólagjöf frá fyrirtækinu sjálfu.“
segir Embla.
Fyrirtækin ákveða sjálf upphæð gjafabréfanna og geta sérsniðið afhendinguna að eigin ímynd. Gjafaöskjurnar er hægt að útbúa í litum og útliti fyrirtækisins, en við rafræna afhendingu fær starfsfólkið gjöfina í gegnum sérhannaða lendingarsíðu með merki fyrirtækisins og jólakveðju.
Gjafabréfið er jafnframt hægt að vista beint í Wallet í símanum.
„Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu mörg fyrirtæki koma aftur til okkar ár eftir ár. Við höfum fengið virkilega góð viðbrögð og það er gaman að sjá að gjafabréfin séu orðin hluti af jólahefðum hjá mörgum fyrirtækjum,“
segir Embla.
Sífellt fleiri staðir verða hluti af upplifuninni
Samhliða vaxandi vinsældum Dineout gjafabréfanna hefur stöðum sem taka við þeim fjölgað jafnt og þétt. Úrvalið spannar allt frá kaffihúsum og vínbörum til rótgróinna veitingastaða, gististaða og sælkeraverslana.
Fyrir veitingastaðina felast ekki síður tækifæri í þessari þróun. Gjafabréfin gefa fólki tilefni til að fara út, prófa nýja staði og njóta upplifana sem það hefði ef til vill ekki annars valið. Þannig geta þau laðað nýja gesti að stöðunum og skapað grundvöll fyrir fleiri heimsóknir.
„Við sjáum mikil tækifæri í því að tengja saman fólk sem vill njóta góðrar upplifunar og staðina sem bjóða hana. Fyrir veitingastaðina snýst þetta ekki bara um eina heimsókn, heldur tækifærið til að ná til nýrra gesta, skapa góða upplifun og gefa þeim ástæðu til að koma aftur,“
segir Inga Tinna.
Nánari upplýsingar um Dineout gjafabréfin má finna á dineoutgjafabref.is.
-
Markaðurinn6 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn6 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Keppni2 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn7 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Keppni5 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt3 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur






