Vertu memm

Frétt

Jökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt

Birting:

þann

Jökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt

Jökull Alexander Egilsson, framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum.

Jökull Alexander Egilsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum ehf. og hefur þegar hafið störf. Jökull hefur mikla reynslu af hótel- og veitingarekstri og er menntaður í faginu.

Víðtæk reynsla af hótelrekstri

Jökull hefur gegnt fjölbreyttum stjórnunarstöðum á hótelum í Reykjavík frá árinu 2011 og starfað sem hótelstjóri síðastliðinn áratug. Í þeim störfum hefur hann borið ábyrgð á bæði gisti- og veitingarekstri hótelanna. Árið 2021 leiddi hann opnun hótelsins Granda og hefur stýrt því allt þar til hann kom til Keahótela.

Erlendis starfaði Jökull meðal annars á Grand Hyatt í Atlanta í Bandaríkjunum, þar sem hann lauk stjórnendaþjálfun Hyatt, og á fimm stjörnu hótelinu Alpina Gstaad í Sviss. Hann er með BA-gráðu í alþjóðaviðskiptum með áherslu á hótel- og ferðaþjónustustjórnun frá César Ritz Colleges í Sviss og hefur jafnframt kennt hótel- og ferðaþjónustustjórnun við Háskólann í Reykjavík.

Yfirumsjón með rekstri tíu hótela

Keahótel reka tíu hótel víðs vegar um landið og sem framkvæmdastjóri rekstrar hefur Jökull yfirumsjón með daglegri starfsemi þeirra.

Í starfinu mun hann leggja ríka áherslu á framúrskarandi upplifun gesta, öfluga liðsheild og góðan rekstrarárangur. Jökull situr í framkvæmdastjórn Keahótela, að því er fram kemur í tilkynningu.

Reynsla Jökuls styrkir starfsemi Keahótela

„Við erum afar ánægð að fá Jökul til liðs við okkur. Hann býr yfir mikilli reynslu og þekkir hótelrekstur frá öllum hliðum. Hann mun án efa styrkja hópinn okkar og nýtast vel við áframhaldandi uppbyggingu og eflingu hótelanna okkar um allt land,“

segir Páll L. Sigurjónsson, forstjóri Keahótela.

Vill gera upplifun gesta enn betri

„Keahótel eru með einstakt safn hótela, hvert með sinn karakter og sína sögu, og frábært starfsfólk. Ég trúi því að besti árangurinn náist þegar starfsfólk fær traust, stuðning og skýra sýn á markmiðin.

Ég hlakka mikið til að vinna með starfsfólki Keahótela um allt land og stuðla að því að gera upplifun gesta okkar enn betri,“

segir Jökull.

Keahótel er eitt stærsta hótelfélag landsins og rekur tíu hótel víðs vegar um landið. Í Reykjavík eru Hótel Borg, Apótek Hótel, Sand Hótel, Hótel Skuggi, Storm Hótel og Reykjavík Lights Hótel.

Utan höfuðborgarinnar rekur félagið Hótel Kea á Akureyri, Sigló Hótel á Siglufirði, Hótel Kötlu við Vík og Hótel Grímsborgir í Grímsnesi. Hjá félaginu starfa um 350 starfsmenn sem leggja metnað sinn í að gestir upplifi íslenska gestrisni eins og hún gerist best.

Mynd: aðsend

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið