Vertu memm

Keppni

Enn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni

Birting:

þann

Róbert Aron Garðarsson Proppé

Róbert Aron Proppé kynnir keppnisdrykk sinn fyrir dómnefndinni í Kaupmannahöfn.

Íslenski barþjónninn Róbert Aron Proppé hefur tryggt sér sæti í lokaúrslitum alþjóðlegu barþjónakeppninnar Hennessy MyWay eftir sigur í svæðisúrslitum Nordics og Baltic, sem fram fóru í höfuðstöðvum Les Deux í Kaupmannahöfn.

Hennessy MyWay er árleg alþjóðleg barþjónakeppni á vegum Hennessy þar sem áhersla er lögð á sköpun og sjálfbærni. Þátttakendur þróa drykki með mismunandi tegundum af Hennessy koníaki og þurfa um leið að sýna hvernig sjálfbær hugsun getur verið rauður þráður í framsetningu.

Í þessari umferð keppti Ísland á móti Finnlandi, Litháen, Eistlandi og Lettlandi. Þrír efstu umsækjendur frá hverju landi komust áfram í svæðisúrslitin í Kaupmannahöfn, þar sem keppendur kynntu drykki með Hennessy V.S og Hennessy V.S.O.P.

Samhliða fór fram keppni milli Noregs, Svíþjóðar og Danmerkur. Þar stóð Agata Zyra frá Noregi uppi sem sigurvegari.

Alls voru þetta 24 frá 8 löndum. Aðeins 2 komust áfram.

Dómnefnd keppninnar skipuðu meðal annars Damiano Pezzi, sem hlaut sjálfbærniverðlaun í lokaúrslitum Hennessy MyWay á síðasta ári, Jessie McRae, Brand Advocacy Manager, og Thierry Sales frá Moët Hennessy.

Róbert stóð að lokum uppi sem sigurvegari í sínum riðli og tryggði Íslandi þar með sæti í lokaúrslitum keppninnar í Cognac í Frakklandi, heimabæ Hennessy. Þar munu sigurvegarar svæðiskeppnanna takast á við næstu áskorun og kynna sjálfbæra drykki byggða á Hennessy X.O.

Enn einn stór áfangi á skömmum tíma

Róbert Aron Garðarsson Proppé

Róbert Aron Proppé fagnar sigrinum í Kaupmannahöfn og sæti í heimsúrslitunum í Cognac.

Árangurinn er sérstaklega athyglisverður í ljósi þess hversu hratt Róbert hefur skipað sér í fremstu röð íslenskra barþjóna.

Róbert gerði verulega vart við sig þegar hann vann Íslandsmeistaratitil barþjóna árið 2025. Sama ár keppti hann fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti barþjóna, þar sem hann náði framúrskarandi árangri og hafnaði á meðal 15 efstu keppenda heims.

Hann fylgdi því síðan eftir á Evrópumótinu 2026, þar sem hann vann til fjölda verðlauna og styrkti enn frekar stöðu sína meðal bestu barþjóna landsins.

Sigurinn í Hennessy MyWay er því ekki aðeins enn einn sigurinn á afrekaskrá Róberts, heldur merkilegt skref fyrir íslenskan barþjón á alþjóðlegum vettvangi. Að standa uppi sem sigurvegari heils svæðis, gegn sterkum keppendum frá mörgum löndum, undirstrikar þá miklu grósku og fagmennsku sem ríkir í íslenskri barmenningu.

Næsta stopp er Cognac, þar sem Róbert fær tækifæri til að halda áfram að gera garðinn frægan fyrir Íslands hönd og etja kappi við fremstu keppendur heims í Hennessy MyWay úr öðrum heimshlutum.

Hér má sjá fréttayfirlit um Róbert Aron Proppé.

Myndir; aðsendar

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið