Frétt
Eiturþörungar dafna vel í sjónum, varað við kræklingatínslu
Í árlegum vorleiðangri Hafró greindust eiturþörungar í miklu magni í sjósýnum í Faxaflóa og fyrir sunnan landið. Tíðafar í maí var tiltölulega gott, sérstaklega suðvestanlands og er ástæða til að ætla að eiturþörungar í sjó dafni víða vel.
Því varar Matvælastofnun almenning við því að tína og borða krækling úr fjörum sunnan og suðvestanlands, hvort sem er í Hvalfirði eða öðrum vinsælum stöðum til tínslu kræklinga við landið.
Regluleg vöktun á eiturþörungum í sjó takmarkast við virk ræktunarsvæði. Niðurstöður vöktunar á eiturþörungum í sjó og þörungaeitri í skel á ræktunarsvæðum kræklings má nálgast á vef Matvælastofnunar.
Svifþörungar eru undirstaða fæðukeðju hafsins, en sumar tegundir mynda þörungaeitur sem er hættulegt mönnum og dýrum. Vöxtur og eiturmyndun í þörungum er ekki fyrirsjáanleg, því getur hættan sprottið upp á gróðurtímabili þörunga, frá mars mánuði og fram á vetur.
Skelfiskurinn sem étur eiturþörunga safnar í sig eitrinu án þess að það hafi áhrif á hann sjálfan. Eituráhrifanna gætir aftur á móti hjá þeim sem neyta skelfisks sem hefur safnað upp þörungaeitri. Upplýsingar um eiturþörunga og þörungaeitur má nálgast á vef Hafrannsóknastofnunar.
Mynd: úr safni
-
Markaðurinn6 dagar síðanInnnes auglýsir spennandi sölustarf
-
Keppni7 dagar síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Markaðurinn5 dagar síðanNýjar íslenskar kartöflur vekja alltaf eftirvæntingu
-
Markaðurinn6 dagar síðanNý uppskera af íslensku spergilkáli komin í verslanir
-
Frétt4 dagar síðanÁkærður fyrir að bera fram maura á Michelin-stað
-
Frétt3 dagar síðanGordon Ramsay, Marco Pierre White og Heston Blumenthal sameinast á ný í nýrri BBC þáttaröð
-
Frétt2 dagar síðanEndurbyggðu veitingastaðinn frá grunni eftir brunann



