Frétt
Pálmasykur frá Royal Orient innkallaður
Matvælastofnun vill vara við neyslu á einni framleiðslulotu af Royal Orient Palm sugar frá Asia Express Food sem Lagsmaður/Fiska.is flytur inn og selur í sinni verslun. Ástæða er vanmerking á innihaldslýsingu á súlfíti sem er ofnæmis-og óþolsvaldur og magn af súlfíti er yfir leyfilegum hámarksmörkum. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness ( HEF).
Tilkynning kom til Íslands í gegnum RASFF evrópska hraðviðvörunarkerfið um hættuleg matvæli og fóður.
Eingöngu er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Royal Orient
- Vöruheiti: Palm sugar
- Best fyrir: 01.10.2026
- Nettómagn: 1 kg
- Geymsluskilyrði: Þurrvara
- Framleiðandi: Asia Express Food
- Framleiðsluland: Thailand
- Dreifing: Verslun Fiska.is, Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogur
Viðskiptavinum er bent á að farga vörunni eða skila í verslun Fiska á Nýbýlavegi 6, Kópavogi.
Mynd: Mast.is
-
Keppni5 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Markaðurinn6 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni7 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Markaðurinn4 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Frétt3 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Keppni7 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Keppni2 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA




