Frétt
Dýrt Búrgúndí-vín fannst á ný eftir furðulegan vínþjófnað

Mynd úr öryggismyndavél af þeim sem eru sagðir hafa stolið vínflöskum að verðmæti nokkurra milljóna króna úr vínkjallara veitingastaðarins.
Tvær afar verðmætar vínflöskur frá hinu virta vínhúsi Domaine de la Romanée-Conti hafa fundist á ný nærri fimm mánuðum eftir að þeim var stolið úr vínkjallara veitingastaðarins L’Auberge Provençale í Virginíu í Bandaríkjunum.
Um er að ræða Romanée-Conti 2020, sem metin var á um 3 milljónir króna, og Richebourg 2019 sem var metin á tæplega 900 þúsund krónur. Frá þessu greinir The Washington Post.
Samkvæmt saksóknurum áttu þjófarnir að hafa þóst vera mögulegir viðskiptavinir sem vildu halda glæsilegan einkakvöldverð á staðnum. Á meðan starfsfólk sýndi þeim vínkjallarann er talið að annar þeirra hafi falið flöskurnar í sérútbúnum vösum innan í frakka.
Málið vakti mikla athygli þar sem meintir gerendur notuðu fölsk nöfn, dulargervi og hárkollur. Bresk kona, Natali Ray, játaði sök í málinu og var dæmd í tólf mánaða fangelsi. Samverkamaður hennar, serbneski ríkisborgarinn Nikola Krndija, er sagður hafa komist undan.
Þrátt fyrir að vínin hafi nú fundist segja eigendur veitingastaðarins að þau kunni að hafa tapað verulegu markaðsvirði. Ómögulegt sé að staðfesta við hvaða aðstæður flöskurnar voru geymdar á þeim 145 dögum sem þær voru horfnar, sem geti haft mikil áhrif á verðmæti svo sjaldgæfra vína.
Mynd: laubergeprovencale.com
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Markaðurinn1 dagur síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins
-
Frétt7 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun12 klukkustundir síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Markaðurinn1 dagur síðanRummo-pasta komið á matseðil skóla í Hafnarfirði
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna
-
Markaðurinn3 dagar síðanKjarnafæði býður allt að 49% afslátt af kjötvörum



