Viðtöl, örfréttir & frumraun
Skandinavísk matarupplifun vakti lukku á Siglufirði
Síldarkaffi á Siglufirði var þéttsetið á þriðjudagskvöld þegar kokkar sumarsins, þeir Elias Johansson og Ted Karlberg frá Karlskrona í Svíþjóð, buðu upp á sex rétta kvöldverð sem vakti mikla lukku meðal gesta.
Fyrir Elias var þetta fyrsta heimsóknin til Siglufjarðar. Hann lagði áherslu á að kynnast bæði staðnum og fólkinu, en jafnframt að kynna eigin matseld fyrir heimafólki og gestum. Fram undan er annasamt sumar hjá honum, en Elias mun sjá um matseldina á Síldarkaffi á komandi tímabili.
- Elias Johansson og Ted Karlberg
Ted Karlberg er hins vegar orðinn vel kunnugur á Siglufirði, en hann hefur heimsótt bæinn reglulega frá árinu 2018. Hann hefur á þeim tíma tekið þátt í uppbyggingu og þróun Síldarkaffis og átt sinn þátt í að móta þá sérstöðu sem staðurinn hefur skapað sér.
Matseðill kvöldsins var í skandinavískum anda þar sem síld, sjávarfang og lambakjöt voru í forgrunni. Samspil hráefna og útfærsla rétta skilaði eftirminnilegri upplifun fyrir gesti.
Sjá einnig: Elias Johansson tekur við eldhúsinu á Síldarkaffi í sumar
Myndir: Facebook / Síldarkaffi.
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanFagmenn úr veitingageiranum hrósuðu matreiðslunemum VMA í hástert – Myndir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanÍslenskur matreiðslumeistari leiðir Chefs Without Borders
-
Frétt6 dagar síðanBrotist inn á veitingastaðinn Glóstein – Kannast einhver við manninn sem braust inn?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanÞórir: „Allir eiga að fá tækifæri“
-
Markaðurinn5 dagar síðanHótel Laugarbakki og Hótel Blönduós óska eftir eldhússtarfsfólki í sumar
-
Keppni4 dagar síðanSkráning er hafin fyrir næsta Arctic Young Chef
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMichelin hættir með grænu stjörnuna
-
Frétt2 dagar síðanMatvælastofnun varar við neyslu á frosnum nautamaga










