Markaðurinn
Viltu reka kaffihús í hjarta Miðborgarinnar
Rekstur kaffihúss í Kolaportinu:
Við óskum eftir rekstraraðila til að reka Kaffihús í Kolaportinu
Möguleiki á bakarí, ísbúð, viðburðahaldi
Opið alla daga vikunnar
Stærð allt að 190 fermetrar
Leiga: Veltutengd leiga
Hafið samband á netfangið: [email protected]
Kaffihús / bakarí / ísbúð í Kolaportinu
Í fjölda ára hefur verið starfrækt kaffihús, eða kaffistofa í Kolaportinu. Með tilkomu nýrra rekstraraðila viljum við efla þessa starfsemi enn frekar og styrkja Kolaportið í sessi sem eitt skemmtilegasta og mest lifandi kaffihús í miðborg Reykjavíkur.
Gert er ráð fyrir að kaffihúsið verði um 40 fermetrar, með um 150 fermetra setusvæði. Þar gefst möguleiki á sætum fyrir yfir 100 manns, sem skapar rými fyrir bæði notalegar stundir og líflega stemningu með viðburðarhaldi.
Unnið er að hönnun á stóru og spennandi barnahorni (um 30 fermetrar) sem mun liggja að kaffihúsinu og gera það sérstaklega aðlaðandi fyrir fjölskyldur.
Kaffihúsið verður aðgengilegt bæði innan úr Kolaportinu og er einnig með sérinngangi frá Geirsgötu, sem eykur sýnileika og aðgengi.
Ýmsir möguleikar eru fyrir hendi, svo sem að vera með bakarí, kaffihús, ísbúð og allt annað sem skapar líf í Kolaportinu.
Leiga er sanngjörn og mögulegt er að hafa kaffihúsið opið alla daga vikunnar.
Nýir tímar í Kolaportinu
Nýir rekstraraðilar tóku við Kolaportinu síðasta haust og með þeim hófst nýr kafli í sögu þessa einstaka markaðar. Nýir rekstraraðilar, þeir Róbert Aron og Einar Örn, hafa meðal annars rekið Götubitahátíðina í Reykjavík og City Food Hall mathöllina í Stokkhólmi og hafa víðtæka og langa þekkingu af rekstri og veitingabransanum.
Róbert og Einar koma með ferska sýn á hvernig Kolaportið mun þróast og blómstra á komandi árum.
Fyrir jól 2025 var haldinn afar vel heppnaður jólamarkaður, Jólaportið, þar sem fjöldi nýrra söluaðila mættu í Kolaportið og gestir streymdu að í mun meira mæli en áður. Stemningin var lifandi, fjölbreytt og hugguleg.
Fram undan eru frekari breytingar sem munu gera Kolaportið að enn meira spennandi og líflegri áfangastað, bæði fyrir Íslendinga og ferðamenn sem vilja upplifa eitthvað ekta, óvænt og skemmtilegt í hjarta Reykjavíkur.
Hafið samband á netfangið: [email protected]
-
Markaðurinn1 dagur síðanLangar þig að reka eldhús með mikla möguleika?
-
Frétt3 dagar síðanEinkakokkar meðal eftirsóttustu matreiðslumanna heims
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanSex nýir komust í hóp þeirra 299 sem bera virtasta titil vínþjóna í heiminum
-
Frétt5 dagar síðanÍslenskir veitingastaðir sagðir of tregir til að hækka verð
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanRoyal Palm South Beach opnar á ný eftir 12,5 milljarða króna endurbætur
-
Frétt3 dagar síðanVanmerkt pestósósa innkölluð úr verslunum Krónunnar
-
Frétt4 dagar síðanPálmasykur frá Royal Orient innkallaður
-
Frétt2 dagar síðanEinsi Kaldi og Vöruhúsið semja við Vestmannaeyjabæ



