Frétt
Kolaportið sem miðstöð matar, menningar og markaðsviðburða – Auglýst eftir rekstraraðila
Auglýst verður eftir varanlegum rekstraraðila að almenningsmarkaði í Tryggvagötu 19, að því gefnu að samningar náist við ríkið um áframhaldandi húsaleigusamning á húsnæðinu. Þetta var samþykkt í borgarráði í dag.
Almenningsmarkaðurinn Kolaportið hefur verið rekinn á fyrstu hæð í Tryggvagötu 19 undanfarin ár en tímabundnum leigusamningi um húsnæðið á milli Reykjavíkurborgar og Framkvæmdasýslu- Ríkiseigna (FSRE) lauk 31. desember síðastliðinn.
Í janúar samþykkti borgarráð framlengingu leigusamnings og var eignaskrifstofu heimilað að gera tímabundinn húsaleigu- og rekstrarsamning við Varmdal ehf. til að skapa svigrúm til að ákveða næstu skref.
Borgarráð hefur nú lýst yfir vilja til að auglýsa eftir varanlegum rekstraraðila að almenningsmarkaði í húsnæðinu en samningur við rekstraraðila mun byggja á því að áframhaldandi húsaleigusamningur verði gerður á milli Reykjavíkurborgar og FSRE.
Starfsemin verði góð viðbót við þá sem fyrir er í miðbænum
Verði auglýst eftir rekstraraðila verður horft til niðurstöðuskýrslu starfshóps um almenningsmarkað í Reykjavík. Skipuð verður matsnefnd sem fer yfir innkomin tilboð þar sem boðið leiguverð verður metið til 25% stiga og aðrir matsþættir til 75% stiga. °
Samkvæmt drögum að
auglýsingu telst meðal annars til annarra matsþátta farsæl reynsla af sambærilegum verkefnum og að tillaga feli í sér aðstöðu fyrir félagsleg tengsl og frumkvöðla, fjölbreytt vöruúrval á breiðu verðbili, fasta sölubása og svæði undir flóamarkað, viðburðasvæði og að boðið verði upp á ferskvöru og veitingar í bland.
Þá verði horft til þess að áætluð starfsemi í húsnæðinu verði góð viðbót við framboð á verslun og þjónustu sem fyrir er í miðbæ Reykjavíkur.
Myndir: reykjavik.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Bocuse d´Or24 klukkustundir síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Frétt4 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Markaðurinn6 dagar síðanKvöld sem koníaksunnendur bíða eftir
-
Frétt5 dagar síðanGrunur um salmonellu í nautahakki og hamborgurum frá Ferskum kjötvörum
-
Keppni3 dagar síðanSara Rós sigraði í Whitley Neill kokteilakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanVinsælustu pizzaáleggin á Íslandi







