Frétt
Yfir 7 milljarðar greiddir í tekjufallsstyrki
Yfir 7 milljarðar hafa verið greiddir í tekjufallsstyrki til 1.215 rekstraraðila frá því að afgreiðsla umsókna hófst hjá Skattinum um miðjan janúar. Um 67% fjárhæðanna hafa farið til fyrirtækja í ferðaþjónustu, sem er svipað hlutfall og í öðrum úrræðum sem stjórnvöld hafa kynnt til sögunnar í tugmilljarða stuðningi við fólk og fyrirtæki vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, að því er fram kemur á vef Stjórnarráði Íslands.
Tekjufallsstyrkir nýtast fjölmörgum rekstraraðilum sem hafa orðið fyrir verulegu tekjufalli í heimsfaraldrinum og er markmiðið að styðja þau fyrirtæki og einyrkja þar sem tekjufall er meira en 40%. Hægt er að sækja um styrkina til 1. maí nk.
Meðalfjárhæð tekjufallsstyrks nemur 5,9 millj.kr. en tæplega 2/3 rekstraraðila eru undir meðalfjárhæðinni. Langflestir sem hlotið hafa tekjufallsstyrk eru lögaðilar, eða fimm af hverjum sex en aðrir eru einstaklingar.
Úrræðið hefur nýst 689 rekstraraðilum sem teljast starfa í ferðaþjónustu og hafa þeir fengið greidda 4,8 ma.kr. í tekjufallsstyrki eða 67% af útgreiddum styrkjum. Ríflega eitt hundrað rekstraraðilar hafa fengið hámarksfjárhæð styrksins, sem er 17,5 millj.kr.-, og er mikill meirihluti þeirra starfandi í ferðaþjónustu eða 83%. Hæstar fjárhæðir hafa runnið til gististaða (1,5 ma.kr.), ferðaskipuleggjenda (1,3 ma.kr.) og veitingahúsa (1,2 ma.kr.).
Útlit er fyrir að 5% af heildarfjárhæð tekjufallstyrkja hafi farið til rekstraraðila í menningargreinum eða um 300 millj.kr.
Þúsundir nýtt á annan tug úrræða
Í vikunni opnaði Skatturinn fyrir umsóknir um lokunarstyrki sem veittir eru vegna stöðvunar á starfsemi fyrir tímabilið 18. nóvember til og með 31. desember 2020. Síðustu mánuði hafa á fjórða þúsund rekstraraðilar og tugþúsundir einstaklinga nýtt sér ýmis úrræði stjórnvalda sem eru á annan tug talsins – styrki, lán, gjaldfresti og annan stuðning.
Yfirgnæfandi meirihluti fyrirtækja sem nýttu sér úrræði stjórnvalda vegna faraldursins árið 2020 voru með tíu launamenn eða færri. Þannig voru þau um 82% þeirra sem nýttu úrræðin, alls rúmlega 2.500 fyrirtæki. Markmið stuðnings við fyrirtæki er að verja störf eins og kostur er auk þess að skapa öfluga viðspyrnu þegar faraldrinum sleppir.
Mynd: úr safni
-
Keppni4 dagar síðanBrons hjá Íslandi í bæði framreiðslu og matreiðslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanRúnar snýr aftur á Hótel Holt sem yfirkokkur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanPítsuofninn kominn á GOTT eftir lokun Pítsugerðarinnar
-
Íslandsmót barþjóna3 dagar síðanReykjavík Cocktail Week lauk með úrslitum og hátíðarkvöldverði í Gamla Bíó – Myndaveisla
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanKonráð Hilmarsson um Marseille: „Skemmtilegast var að heyra að Ísland væri komið áfram“
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanMyndir frá formlegri opnun á nýjum stað hjá Mat og drykk
-
Markaðurinn6 dagar síðanKlassískt lasanja fær nýtt bragð með kotasælu
-
Frétt2 dagar síðanAftur greinist salmonella í nautahakki




