Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

Áhugaverður Slow Food viðburður í september 2022

Birting:

þann

TERRA MADRE NORDIC 2022

Slow Food á Norðurlöndum (SFN) og Eldrimner, sænska landsþekkingasetrið fyrir smáframleiðendur matvæla í Östersund í Jämtland héraði, standa saman að viðburði í september 2022 þar sem matvæli smáframleiðenda á Norðurlöndum verða í hávegum höfð.

Viðburðurinn er TERRA MADRE NORDIC sem var síðast haldið í Kaupmannahöfn í apríl 2018 og átti að halda 2020 en var frestað vegna Covid faraldursins.

Heitið Terra Madre Nordic (TMN) vísar í Terra Madre (TM) sem er á vegum Slow Food haldið á tveggja ára fresti í Torino á Ítalíu síðan 2004 (ásamt Salone del Gusto, stærsta sýning heims um matvæli sem er opin almenningi og dregur til sín 250 þúsund manns hverju sinni). Ísland hefur þrisvar tekið þátt í TM með bás.

Á TM er alþjóðleg sýning matvæla frá smáframleiðendum sem hafa fengið viðurkenningu Slow Food en einnig og jafnvel mikilvægara, málþing, málstofur, vinnustofur (worshop), smakkanir, fyrirlestrar, svæðisfundir og höfðar til bænda, framleiðenda, nema, háskólafólks, matreiðslumanna, alþjóðastofnanna (og stjórnmálamanna) og margra annarra.  Það sama gildir um TMN.

NAFA hluturinn af viðburðinum stendur fyrir Nordic Artisan Food Awards og verður haldið í fyrsta skipti eftir sömu reglum og fyrirkomulagi sem hefur verið notað fyrir sænska Særimner, sænska matvælakeppni fyrir smáframleiðendur sem hefur verið einkar vinsæl og náð útbreiðslu á öllum Norðurlöndum.  Auk Norðurlandakeppni, mun Eldrimner skipuleggja markaðstorg í Stora Skuggan fyrir alla þá sem munu taka þátt í keppninni og aðra sem skrá sig sérstaklega.

Nánari upplýsingar á eftirfarandi vefslóðum:

Slow Food á Norðurlöndum (Slow Food in the Nordic Countries).

Eldrimner.

NAFA.

NAFA TERRA MADRE skipulag

Eins og Terra Madre 2018, hafa Slow Food samtökin á Norðurlöndum fengið styrk frá Norrænu Ráðherranefndinni, Ny Nordisk Mad, til að standa straum af kostnaði fyrir viðburðinn sjálfan.

Verkefnastjórinn, Jannie Vestergaard ([email protected]) er dönsk með viðtæka reynslu um matvælaframleiðslu í Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi þar sem hún hefur starfað í þeim löndum í mörg ár með smáframleiðendum og skipulagt með þeim og þarlendum opinberum aðilum og samtökum viðburði af ýmsu tagi. TMN ber ábyrgð á dagskrá, málstofum, vinnusmiðjum, smökkunum og uppákomum á svæðinu.

Eldrimner ber ábyrgð á keppninni og markaðstorginu.

DAGSKRÁ (bráðábyrgða)

Dagskráin er enn í mótun (maí 2022) en þema NAFA-TMN 2022 eru:

„Regenerative and resilient – Arctic and Nordic Food“

Tvær málstofur verða haldnar til að fara dýpra í þessum hugtökum þar sem bændur jafnt sem stjórnmálamenn eða sérfræðingar munu kryfja málin til mergjar.

TERRA MADRE NORDIC 2022

Stór „tipi“ tjöld verða reist á svæðinu til að hýsa markaðstorgið og smakkanir, en margir möguleikir eru fyrir hendi um svæði fyrir málstofur, vinnustofur og smakkanir.

Carola‘s Eko veitingahús í Stora Skuggan er samstarfsaðili TMN og NAFA.

ÍSLENSK ÞÁTTTAKA

Íslendingum stendur til boða að:

  • taka þátt í Norðurlandakeppni (óháð þátttöku í markaðstorginu)
  • taka þátt í markaðstorginu (sölutorg)
  • taka þátt með sínar vörur í vinnusmiðjum eða smökkunum, sem verða samnorrænar

Kostnaður við þátttöku er mjög stillt í hóf (t.d. kostar 1 x 5-6 bása tjald 8000 SEK eða 110 000 ISK +vsk, vatn, rafm.) og þátttaka í vinnusmiðjum eða smökkunum er kostað af þeim sem skrá sig (gegn gjaldi).

Aðgangseyrir verður á svæðinu sem er á besta stað nálægt miðborg Stokkhólms.

Allar nánari upplýsingar veita:
Dominique Plédel Jónsson [email protected] – +354 898 40 85
Jannie Vestergaard [email protected]

 Hér er hægt að lesa nánar um Slow Food og viðburðurinn TERRA MADRE NORDIC.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið