Markaðurinn
Wolt fagnar uppbyggilegu samtali um nýsköpun og framtíð afhendinga í Reykjavík
Á miðvikudag hélt Wolt hádegisfund á Granda þar sem rætt var um þróun verkvangshagkerfisins, nýsköpun í afhendingum innan borgarinnar og framtíð heimsendingarþjónustu á Íslandi. Nokkrir borgarfulltrúar í Reykjavík sóttu fundinn og var þar farið í málefnalegt og framsækið samtal um hvernig tæknilausnir geta bætt daglegt líf íbúa og stutt við atvinnulíf.
Rætt var um hlutverk vettvanga á borð við Wolt í að styðja við staðbundna veitingastaði og verslanir, skapa sveigjanleg tekjutækifæri og auka þægindi fyrir neytendur. Almennt var samhljómur um að nýsköpun á sviði afhendingarþjónustu geti haft jákvæð áhrif á borgarlíf og efnahagslíf á staðnum.
Meðal gesta voru oddvitar í framboði til borgarstjórnar í Reykjavík, Hildur Björnsdóttir, Björg Magnúsdóttir, Pétur Marteinsson, Ari Edwald og Einar Þorsteinsson. Þá tóku einnig þátt Daníel Guðmundsson, sendill Wolt frá Selfossi, Hjalti Vignus, stofnandi hamborgarakeðjunnar 2Guys fyrir hönd samstarfsaðila Wolt, og Guðný Ljósbrá Hreinsdóttir sem talaði út frá sjónarhorni viðskiptavina.
Fram kom að margir gestanna töldu að starfsemi Wolt hefði jákvæð áhrif fyrir bæði íbúa og atvinnulíf. Á sama tíma bentu stjórnmálamenn á mikilvægi þess að jafnvægi sé á milli sveigjanleika og frelsis annars vegar og öryggisnets og skýrs regluverks hins vegar.
„Við erum ekki öll eins og komum úr ólíkum aðstæðum, þannig að svigrúm og valfrelsi skipta miklu máli. Á sama tíma þarf ramminn að vera skýr svo fólk viti hver réttindi þess eru,“
sagði Björg Magnúsdóttir.
Einnig var rætt um hvernig ný tækni gæti hjálpað til við að mæta áskorunum borgarinnar, svo sem umferð og álag á gatnakerfi. Fulltrúar borgarinnar sýndu vilja til að skoða nýjar lausnir, þar á meðal möguleika á notkun dróna til afhendinga í framtíðinni.
Einn borgarfulltrúi orðaði það svo að „þeir ættu auðvitað að geta sent pizzur heim til fólks,“ og vísaði þar til möguleika drónatækni í borgarumhverfi. Þá var bent á að með tæknilausnum mætti „komast hjá umferð“ og þannig gera afhendingar skilvirkari og mögulega umhverfisvænni.
„Opið og heiðarlegt samtal við fulltrúa borgarinnar er lykilatriði þegar við skoðum hvernig tæknin getur stutt við skilvirkari og sjálfbærari afhendingar innan borgarinnar,“
sagði Jóhann Helgason, forstöðumaður viðskiptastýringar hjá Wolt á Íslandi.
„Við erum ánægð með uppbyggilega umræðu og þann vilja sem sýndur var til að skoða nýjar lausnir. Markmið okkar er alltaf að skapa verðmæti fyrir samstarfsaðila, viðskiptavini og sendla, á ábyrgan hátt og í samræmi við gildandi regluverk.“
Wolt fagnar þeirri nálgun sem fram kom hjá borgarfulltrúum og hlakkar til áframhaldandi samtals um raunhæfar, öruggar og sjálfbærar lausnir sem gagnast íbúum, fyrirtækjum og sendlum.
Eftir því sem tæknin þróast mun Wolt áfram vinna náið með stjórnvöldum og sveitarfélögum að því að tryggja að nýjungar séu innleiddar með ábyrgum hætti og í samræmi við íslensk lög og væntingar samfélagsins.
Meðfylgjandi myndir voru teknar á hádegisfundi Wolt á Granda.
-
Frétt5 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Keppni6 dagar síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Keppni5 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Bocuse d´Or6 dagar síðan„Draumurinn hefur alltaf verið að keppa í þessari keppni,“ segir Snædís
-
Markaðurinn7 dagar síðanMorgunverður í aðalhlutverki þegar Innnes býður í opið hús 19. mars
-
Frétt13 klukkustundir síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun16 klukkustundir síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
















