Markaðurinn
Þorskur í sparifötunum, stökkur ostahjúpur og sítrónukeimur
Einstaklega ljúffengur fiskréttur sem tekur enga stund að útbúa. Það er svo gott að nota fjögurra osta blönduna í þennan rétt því bragðmikill osturinn setur svo mikinn svip á réttinn. Í staðinn fyrir ostablönduna má líka rífa sjálfur niður t.d. sterkan Gouda eða Óðals Tind.
Með fisknum er ákaflega gott að bera fram nýbakað rúgbrauð með smjöri og létt salat.
Innihald
4 skammtar
800 g þorskhnakkar, 800-900 g
75 g smjör
1 stk. hvítlauksrif
1 stk. sítróna
2 1⁄2 dl panko brauðraspur
200 g 4 osta blanda (1 poki)
fersk steinselja, handfylli
salt og pipar
Meðlæti
rúgbrauð og ferskt salat
Aðferð:
Skref 1
- Hitið ofn í 200 gráður með blæstri.
- Bræðið smjörið við vægan hita, rífið eða hakkið hvítlauksrifið og bætið út í ásamt berki af einni sítrónu. Leyfið þessu að krauma í 1-2 mínútur og takið af hitanum.
- Bætið raspinum út í ásamt saxaðri steinselju og blandið vel saman.
- Hrærið að lokum ostinum saman við blönduna. Smakkið til með salti og pipar.
Skref 2
- Skerið fiskinn í passlega bita og raðið í eldfast mót. Saltið og piprið vel báðum megin.
- Setjið ostablönduna ofan á hvern bita og þrýstið aðeins niður. Það er allt í lagi þó blandan fari aðeins framhjá og á milli bitanna.
Skref 3
- Bakið þar til fiskurinn er eldaður í gegn og ostahjúpurinn gullinbrúnn. 15-20 mínútur.
- Berið fram með sítrónubátum, rúgbrauði, smjöri og fersku salati.
Höfundur: Helena Gunnarsdóttir – Gottimatinn.is
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanGordon Ramsay undirbýr nýjan stað í hjarta London
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanHópuppsagnir hjá Hilton Nordica og Natura
-
Frétt4 dagar síðanCarlo Petrini er látinn, 76 ára að aldri
-
Markaðurinn6 dagar síðanFosshótel Jökulsárlón leitar að kokki og aðstoðarfólki í eldhús
-
Keppni17 klukkustundir síðanLeitað að bestu ostakökunni og brauðtertunni
-
Frétt3 dagar síðanErfið tímamót hjá Berjaya en rekstur félagsins heldur áfram
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanÍtalska keðjan Spaghetti House komin í þrot
-
Markaðurinn4 dagar síðanLokað hjá Mjólkursamsölunni mánudaginn 25. maí




