Food & fun
Þessir gestakokkar heimsækja Ísland í tilefni Food & Fun
Matarhátíðin Reykjavík Food & Fun verður haldin dagana 25. febrúar – 1. mars, í 23. skiptið.
Ár hvert er beðið með mikilli eftirvæntingu eftir að sjá hvaða veitingastaðir taka þátt, og hvaða erlendu matreiðslumeistarar koma til landsins að deila snilligáfu sinni með veitingahúsagestum Reykjavíkur.
Sjá einnig: Matarhátíðin Food & Fun fer fram í 23. sinn
Hátíðin hefur öðlast fastan sess í menningarlífi borgarinnar og er löngu orðin ein af hápunktum ársins fyrir matgæðinga. Markmið Food & Fun er að sameina einstakt íslenskt hráefni og alþjóðlega matargerðarlist, þar sem erlendir gestakokkar fá tækifæri til að nýta afurðir Íslands í nýstárlegum réttum. Hátíðin hefur vakið mikla athygli á heimsvísu og hefur reynst frábær kynning á íslenskri matargerð.
Eftirtaldir veitingastaðir og gestakokkar koma til með að taka þátt í Reykjavík Food & Fun hátíðinni 2026:
Apotek Restaurant: Danitza Gabriela (Perú)
Brasa: Victor Planas (Spánn)
Bryggjuhúsið: Sáfy Homola (Slóvakía)
EIRIKSSON Brasserie: Flora Mikula & Beatriz Gonazales (Frakkland)
Finnsson: Tom Cook (Bretland)
Fiskmarkaðurinn: Mark Edwards (Bretland)
Fjallkonan: Diletta Zenna (Ítalía)
Geiri Smart: Jesse Miller (Bandaríkin)
Hjá Jóni Restaurant: Aleksi Lukka (Finnland)
Kastrup: Sylvia Vavik Flåten (Noregur / Mexíkó)
La Primavera / Harpa: Luigi Pomata (Ítalía)
La Primavera / Marshallhúsið: Christopher Basset (Bretland)
Lóla: Adam Dahlberg (Svíþjóð)
Skreið: Iñaki & Mikel Lpz. De Viñaspre (Spánn)
Sumac Grill +Drinks: Paco Omaña (Portúgal)
Sushi Social: Alejandro Pérez & Ismael de Jesús Olivar Avalos (Mexíkó)
Tides: Diego Munoz (Perú)
Tres Locos: Carlos Barragán (Mexíkó)
Vox Brasserie & Bar: Ricardo Aquista (Spánn)
„Food & Fun er sannkölluð uppskeruhátíð veitingabransans og hápunktur ársins fyrir matarunnendur. Hátíðin hefur frá árinu 2002 verið hreyfiafl í íslenskri veitingamenningu og átt stóran þátt í að móta Reykjavík sem alvöru mataráfangastað.
Með komu erlendra meistarakokka sem starfa með okkar bestu veitingastöðum skapast einstakt tækifæri til að kynnast nýjungum og leyfa bragðlaukunum að ferðast um heiminn. Þetta snýst ekki síður um að kynna íslenskt úrvalshráefni fyrir erlendum fagmanneskjum og bera hróður Íslands víða.“
Segir Óli Hall, framkvæmdastjóri hátíðarinnar.
Íslenskt hráefni í forgrunni
Erlendir gestakokkar hafa í gegnum tíðina verið sérstaklega hrifnir af íslensku hráefni, sem hefur jafnframt orðið að aðalsmerki Food & Fun hátíðarinnar. Mörg dæmi eru um að íslenskar afurðir hafi ratað á matseðla víða um heim í kjölfar þess að gestakokkar kynntust þeim á hátíðinni.
Sérstök áhersla verður lögð á gæði íslenskra fiskafurða og fjölda annara staðbundina hráefna sem fást á Íslandi.
Gestakokkarnir eru hvattir til að nýta sér það sem landið hefur uppá að bjóða og matreiða á sinn hátt.
Matarferðamennska og íslensk menning
Matarmenning er orðin stór þáttur í aðdráttarafli Íslands fyrir erlenda gesti, og hátíð eins og Food & Fun hefur hjálpað til við að koma Íslandi á kortið sem spennandi áfangastað fyrir sælkera.
Einstök upplifun
„Gestir mega búast við mikilli gleði, klikkaðri stemningu og nýjum nálgunum á íslenskt hráefni. Umfram allt má fólk eiga von á ógleymanlegri kvöldstund. Sagan sýnir að margir af frægustu matreiðslumönnum heims hafa tekið stór skref í átt að ofurstjörnustatus suttu eftir þátttöku í Food & Fun, svo það er aldrei að vita nema gestir séu að njóta veitinga frá næstu stórstjörnu matreiðsluheimsins.
Ég mæli eindregið með því að fólk geri sér dagamun, skilji amstrið eftir heima og gefi sér tíma til að njóta. Upplifunin snýst um að vera til staðar, ræða um matinn, spá í bragði og jafnvel spjalla við gestakokkana ef tækifæri gefst. Þetta er tækifæri til að skapa dýrmætar minningar og njóta lífsins yfir góðum mat.“
Segir Óli Hall í tilkynningu.
Hægt að bóka borð inn á Dineout
Fimmtudaginn 12. febrúar verður opnað fyrir sérstaka Food & Fun bókunarsíðu inn á Dineout þar sem hægt verður að bóka borð á öllum Food & Fun veitingastöðunum á einum stað.
Vefsíða hátíðarinnar www.foodandfun.is.
Myndir: Aðsendar / Ljósmyndirnar eru frá Food & Fun matarhátíð fyrri ára.
-
Markaðurinn1 dagur síðanGlæsileg sýning í Höllinni
-
Markaðurinn5 dagar síðanRational í 50 ár og árið 2025 metár á Íslandi
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanÆtti svona saké viðburður líka heima á Íslandi?
-
Markaðurinn6 dagar síðanMyndir: Peter De Wandel heimsótti Garra og kynnti nýjungar frá Ardo
-
Keppni3 dagar síðanHelga Signý sigraði í Barlady keppninni í annað sinn – Myndir
-
Markaðurinn5 dagar síðanMinnkum matarsóun
-
Markaðurinn6 dagar síðanBragðmikil taco súpa með cheddar og sýrðum rjóma
-
Uppskriftir4 dagar síðanTiramisú brownies með silkimjúku mascarpone kremi















