Vertu memm

Bocuse d´Or

Snædís komst áfram í úrslit Bocuse d’Or

Birting:

þann

Bocuse d'Or 2026 - Snædís Xyza Mae Jónsdóttir

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir og Marlís Jóna Þórunn Karlsdóttir fagna góðum árangri eftir spennuþrunginn og krefjandi keppnisdag í Bocuse d’Or Europe 2026 í Marseille.

Nú rétt í þessu voru úrslitin kynnt í Evrópuforkeppni Bocuse d’Or Europe við hátíðlega athöfn, en keppnin fór fram í Marseille í Frakklandi.

Bocuse d'Or 2026

Skjáskot úr beinni útsendingu.

Þrjú efstu sætin

1. sæti – Danmörk

2. sæti – Noregur

3. sæti – Ítalía

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir keppti fyrir hönd Íslands og hreppti 10. sætið. Hún tryggði sér þar með sæti í úrslitakeppninni í Lyon í Frakklandi í janúar 2027.

Alls tóku 20 lönd þátt í undankeppninni sem stóð yfir síðastliðna tvo daga. Tíu efstu liðin tryggja sér sæti í úrslitakeppninni sem fram fer í Lyon í Frakklandi dagana 21. til 25. janúar 2027 á Sirha Lyon-sýningunni, þar sem 24 lönd munu keppa.

Þau 10 lið sem komust áfram eru:

Bocuse d'Or 2026

Sérstök verðlaun voru einnig veitt í keppninni í Marseille:

Bocuse d'Or 2026

Hanna Korvald frá Noregi tekur við verðlaunum sem besti aðstoðarmaðurinn á Bocuse d’Or Europe 2026. Til hægri er Léa Linster, Bocuse d´Or sigurvegari 1998, sem afhenti verðlaunin. Skjáskot úr beinni útsendingu.

Besta aðstoðarmanninn: Hanna Korvald – Noregur

Besta Miðjarðarhafsréttinn: Finnland

Besta keppnisfatið: Svíþjóð

Bocuse d'Or 2026 - Snædís Xyza Mae Jónsdóttir

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir og aðstoðarmaður Snædísar: Marlís Jóna Þórunn Karlsdóttir
Mynd: Facebook / Bocuse d’Or Team Iceland

Íslenska liðið í heild sinni

Bocuse d’Or-kandídat: Snædís Xyza Mae Jónsdóttir

Aðstoðarmaður Snædísar: Marlís Jóna Þórunn Karlsdóttir

Aðstoðarmenn:
Jakob Árni Kristinsson
Sædís Hui
Konráð Hilmarsson

Þjálfari: Sigurður Helgason

Dómari í Lyon fyrir hönd Íslands: Viktor Örn Andrésson

Skylduhráefni

Í keppninni var unnið út frá klassísku „surf and turf“ þema þar sem hráefni úr hafi og landi eru sameinuð. Þemað gefur keppendum færi á að sýna bæði tæknilega færni og skýra hugmyndafræði í framsetningu og bragði.

Reglur „Theme on Plate“ gera ráð fyrir einni surf and turf samsetningu þar sem skylduhráefnin eru smokkfiskur (cuttlefish) og Camargue-nautalund með AOP-vottun. Diskurinn er ætlaður fyrir 14 manns. Allt skylduhráefni þarf að vera fullunnið og greinilega auðkennanlegt bæði í útliti og bragði. Hlutfallið á disknum er jafnt, 50 prósent smokkfiskur og 50 prósent nautalund. Hvítlaukur og ólífuolía eru einnig skylduhráefni, þó keppendur hafi frjálsar hendur um tegund og magn. Engin önnur sambærileg hráefni mega koma í stað þeirra sem skilgreind eru í reglum keppninnar.

Skylduhráefnin í keppninni á fati voru rauður gurnard-fiskur, ígulker, litlir fjólubláir ætiþistlar og kjúklingabaunir. Hráefnin þurfa að vera greinilega auðkennanleg bæði í útliti og bragði og eru þau lögð til af Bocuse d’Or-nefndinni samkvæmt keppnisreglum.

Góður árangur íslenskra keppenda í Bocuse d’Or

Keppnin Bocuse d’Or hefur verið haldin frá árinu 1987 en fyrsti íslenski keppandinn tók þátt árið 1999. Það var Sturla Birgisson sem hafnaði í fimmta sæti. Síðan þá hafa Íslendingar reglulega náð góðum árangri í keppninni. Bestum árangri náðu Hákon Már Örvarsson árið 2001 og Viktor Örn Andrésson árið 2017 þegar þeir hlutu báðir bronsverðlaun.

Fleiri Bocuse d’Or-fréttir má finna hér.

Innilega til hamingju, Snædís, með glæsilegan árangur.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið