Keppni
Snædís áfram þjálfari Kokkalandsliðsins
Snædís Xyza Mae Ocampo matreiðslumaður verður áfram þjálfari Íslenska Kokkalandsliðsins sem Klúbbur matreiðslumeistara heldur utan um og rekur. Snædís tók við Kokkalandsliðinu í mars 2023 og stýrði liðinu þegar liðið náði þriðja sætinu á Ólympíuleikunum í Stuttgart, sem haldnir voru í febrúar síðastliðinn.
Snædís útskrifaðist sem matreiðslumaður 2018 og hefur alla tíð verið tengd keppnismatreiðslu. Hún var fyrirliði í landsliðinu sem fór á heimsmeistaramótið 2018 og var einnig fyrirliði liðsins sem var í þriðja sæti á Ólympíuleikunum í Stutgart 2020.
Snædís hóf nám sitt á Apótekinu, þó áhuginn hafi í raun vaknað þegar hún starfaði á Sushi Samba. Náminu lauk hún svo á Hótel Sögu. Aðspurð sagðist Snædís þó ekki hafa gengið með kokkinn í maganum og ætlaði í raun aldrei að læra fagið, en þegar sú ákvörðun var síðar tekin þá stefndi hún jafnhliða að því að vera ein að þeim bestu!

Snædís Xyza Mae Ocampo var sæmd Cordon Bleu orðu Klúbbs matreiðslumeistara nú á dögunum.
Bjarki Ingþór Hilmarsson formaður orðunefndar, Snædís Xyza Mae Ocampo og Þórir Erlingsson forseti Klúbbs matreiðslumeistara.
Mynd: aðsend / Þórir Erlingsson
Með það í huga varð hún fljótlega einn af aðstoðarmönnum landsliðsins og síðar einn af aðstoðarmönnunum á Ólympíuleiknum 2016. Í dag starfar Snædís sem yfirmatreiðslumaður á ION Hótel.
Þegar Snædís var spurð um markmið hennar þá sagðist hún vilja vera fyrirmynd fyrir alla sem vinna með henni og vonist til að þeim finnist þau geta sótt til hennar ráð bæði nú og í framtíðinni.
“Ein af mínum stoltustu stundum var þegar ég gekk upp á svið til að fá afhent brons verðlaun á Ólympíuleikunum 2020 komin fjóra mánuði á leið. Að endurtaka leikinn, sem þjálfari fjórum árum síðar, var ekki síður stórkostlegt.
Ég á þá ósk að landsliðsfólk framtíðarinnar eigi eftir að upplifa þessa sömu tilfinningu. Við ætlum okkur á stóra hluti á heimsmeistaramótinu 2026, en við höfum ekki náð á pall þar ennþá, og við ætlum okkur að breyta því! ”
sagði Snædís að lokum.
„Árangur á stórmótum kemur ekki af sjálfu sér og kostar mikla vinnu frá öllum sem að því koma, sama hvort við eru að tala um landsliðsþjálfara, landsliðsfólk, fjölskyldur þeirra, aðstoðarmenn og alla aðra sem að liðinu koma.
Það að fylgjast með Snædísi vaxa frá aðstoðarmanni landsliðsins upp í þátttakanda liðsins og svo nú síðast sem þjálfara sýnir okkur öllum hvað hægt er að gera með mikilli vinnu, áræðni og einbeitingu.
Við erum stolt af því að Snædís sé til í að halda áfram sem landsliðsþjálfari Kokkalandsliðsins“
segir Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara.
„Við megum heldur ekki gleyma bakhjörlum og styrktaraðilum liðsins en án þeirra væri ekki hægt að halda úti svona öflugu liði.
Undanfarin ár hefur landsliðið æft í húsnæði fagfélagana á Stórhöfða og á Matvís miklar þakkir fyrir að veita þá aðstöðu,“
bætir Þórir við.
-
Frétt6 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Keppni7 dagar síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Keppni7 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Frétt2 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Markaðurinn4 dagar síðanKvöld sem koníaksunnendur bíða eftir
-
Bocuse d´Or8 klukkustundir síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille








