Vertu memm

Keppni

Sigraði í kokkaskólakeppni í Róm með íslenskan saltfisk

Birting:

þann

Sigraði í keppni kokkanema í Róm með íslenskan saltfisk

Kokkaskólakeppnin var haldin í Róm, þar sem sex matriðslunemenar elduðu eigin uppskriftir úr íslenskum saltfiski.

Markaðsverkefnið Seafood from Iceland hefur undanfarin ár lagt mikla áherslu á að kynna íslenskan þorsk fyrir ungum matreiðslumönnum í Suður-Evrópu. Snemma í apríl var haldin kokkaskólakeppni í Róm á vegum verkefnisins, þar sem sex matreiðslunemar elduðu eigin uppskriftir úr íslenskum saltfiski.

Þetta er þriðja lokakeppnin á fimm mánuðum í þremur löndum, en áður voru haldnir sambærilegir viðburðir í Madrid í mars sl. og Porto í nóvember 2021.

Sigraði í keppni kokkanema í Róm með íslenskan saltfisk

Keppnin fór fram í Istituto Gioberti kokkaskólanum í Róm og einkenndi mikil fagmennska viðburðinn.

Keppnisfyrirkomulag

Keppnin fór fram í Istituto Gioberti kokkaskólanum í Róm og einkenndi mikil fagmennska viðburðinn. Keppendurnir komu úr sex mismunandi skólum sem eru staðsettir víðsvegar um Ítalíu: Sorrento, Róm, Tórínó, Cervia, Melfi og Giulianova. Allir skólarnir fengu sendan íslenskan saltfisk og því næst var haldin undankeppni í hverjum skóla fyrir sig og þannig valinn þátttakandi fyrir lokakeppnina í Róm.

Dómnefnd

Í dómnefndinni var valinn maður í hverju rúmi, m.a. ítalski landsliðskokkurinn Lorenzo Alessio og Toti Lange, eigandi á saltfiskveitingastaðnum Baccalaria í Napólí.  Þá sátu einnig í dómnefnd þau Donatella Chiappini, ritstjóri fyrir mat og vín hjá einu mest lesna dagblaði Ítalíu, La Repubblica, og ítalski kokkurinn Rocco Paglia sigurvegari Roma Baccala 2021 og eigandi veitingastaðarins MABE í Róm.

Sigraði í keppni kokkanema í Róm með íslenskan saltfisk

Diego Di Leva varð hlutskarpastur í keppninni.

Sigurvegari

Diego Di Leva, frá Istituto Specialistico San Paolo kokkaskólanum í Sorrento varð hlutskarpastur í keppninni. Hann hlaut að launum Íslandsferð og mun á næstunni koma til landsins, ásamt kennara sínum, og kynnast landinu sem framleiðir þessa einstöku gæðavöru sem íslenski saltfiskurinn er.

Myndir: islandsstofa.is

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið