Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Samið við Hjá Höllu um veitingarekstur á Keflavíkurflugvelli
Veitingastaðurinn Hjá Höllu í Grindavík var með hagstæðasta tilboðið í útboði fyrir útleigu á aðstöðu undir veitingaþjónustu á annarri hæð í suðurbyggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli. Útboðið hófst í mars síðastliðnum, en skömmu áður var haldinn vel sóttur fundur þar sem framkvæmd útboðsins var kynnt.
Hjá Höllu byrjaði sem heimilisrekstur árið 2012 sem sendi út matarpoka til einstaklinga með þeim tilgangi að kenna fólki að borða hollt og reglulega. Árið 2013 flutti fyrirtækið í stærra húsnæði í Grindavík og keyptur var bíll til að keyra út vörur. Eftirspurn jókst og samhliða því bauð fyrirtækið upp á mat fyrir fyrirtæki og hópa. Í byrjun árs 2016 opnaði veitingastaðurinn Hjá Höllu og er rekinn samhliða fyrirtækjaþjónustunni. Hægt er að lesa meira um fyrirtækið á vef þess hér.
Tólf veitingaaðilar sóttu útboðsgögn
Óskað var eftir áhugasömum aðilum með reynslu af veitingarekstri til þátttöku í valferlinu. Byggt var á markaðsrannsóknum meðal tengifarþega sem sýndu að þeir kjósi þekkta matvöru sem sé tilbúin á skömmum tíma, þá helst pítsur og fersk salöt.

Hjá Höllu var með hagstæðasta tilboðið í útboði um rekstur á veitingaþjónustu í suðurbyggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Gerður verður 4 ára samningur um reksturinn. Stefnt er á að opna staðinn síðar í sumar.
Tólf fyrirtæki sóttu útboðsgögn eftir að opnað var fyrir aðgang að þeim 28. mars síðastliðinn. Fjögur þeirra sendu inn upplýsingar um hæfi, þrjú tilboð uppfylltu hæfiskröfur og var þeim sem stóðu að tilboðunum þremur boðið til viðræðna. Í valferlinu var notast við samkeppnisviðræður og að lokum samið við þann aðila sem skilaði inn hagstæðasta tilboðinu. Matsnefnd fór yfir tilboðin og var hún skipuð tveimur fulltrúum frá Isavia og tveimur utanaðkomandi aðilum frá Deloitte.
Gerður verður fjögurra ára samningur við Hjá Höllu um útleigu á aðstöðunni og rekstur veitingaþjónustu í suðurbyggingu flugstöðvarinnar. Mun staðurinn bjóða upp á pítsur, salöt og einn heitan rétt að auki. Stefnt er að því að staðurinn verði opnaður síðar í sumar.
Myndir: aðsendar

-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 klukkustundir síðan
Pizzabakarinn opnar á Siglufirði – Theodór Dreki: „Við hættum ekki fyrr en pizzan var fullkomin“
-
Keppni3 dagar síðan
Íslenska landsliðið í kjötiðnaði sýndi frábæran árangur á Heimsmeistaramótinu í París – Myndir og vídeó
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
Snædís, Hafliði og Marlís kynntu íslenska matargerð á ríkisheimsókn forsetahjóna
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðan
Pop-up kvöld: Gísli Matt mætir á Le KocK – aðeins þetta eina kvöld
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Kælivagn til leigu
-
Íslandsmót barþjóna2 dagar síðan
Róbert Aron Garðarsson Proppé er Íslandsmeistari Barþjóna 2025 – Myndir og vídeó
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Kynning í Garra næsta miðvikudag
-
Keppni2 dagar síðan
Brauðtertukeppni fyrir fagmenn