Frétt
Ónóg upplýsingagjöf um ofnæmisvalda í óinnpökkuðum mat hjá verslunum og veitingahúsum
Árlega standa Matvælastofnun og heilbrigðiseftirlit sveitafélaganna fyrir sameiginlegum eftirlitsverkefnum. Verkefnin standa yfir í afmarkaðan tíma og er þá lögð áhersla á ákveðið, afmarkað málefni. Á tímabilinu frá 15. mars til loka september 2017 var sjónum beint að upplýsingagjöf til neytenda um ofnæmis- og óþolsvalda í óforpökkuðum matvælum (mat sem ekki er pakkað í umbúðir fyrir sölu eða er pakkað á sölustað).
Eftirlitsverkefnið sýnir að upplýsingagjöf verslana og veitingahúsa um ofnæmisvalda í óinnpökkuðum matvælum er víða ófullnægjandi.
Alls var farið í 159 matvælafyrirtæki af mismunandi gerð. Þar af voru 104 veitingastaðir (þ.m.t. hótel, skyndibitastaðir og kaffihús), 26 bakarí, 23 brauðbarir í verslun, 2 ísbúðir og 4 kjöt- eða fiskborð (sérverslun eða innan stærri verslunar).
Í tilkynningu frá Matvælastofnun segir að frávikin voru misalvarleg. Í flestum tilvikum var vandamálið að ekki voru sýnilegar upplýsingar (t.d. skilti eða á matseðli) sem gáfu til kynna að starfsfólk veitti munnlegar upplýsingar um ofnæmisvalda. Alvarlegast var þegar gefin voru þau svör að ekki væru ofnæmisvaldar í tilteknum matvælum en ekki var hægt að staðfesta það með neinum hætti (uppskrift eða innihaldslisti ekki til staðar).
Í yfir 80% tilvika var um að ræða óboðað eftirlit, en af 159 verslunum og veitingahúsum reyndust eingöngu 57% uppfylla upplýsingaskyldu.
Ítarefni er hægt að lesa á eftirfarandi vefslóðum:
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanRúmlega sex metra brauðterta sló í gegn á Menningarnótt
-
Markaðurinn2 dagar síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Frétt6 dagar síðanBeint frá býli dagurinn haldinn um land allt
-
Frétt5 dagar síðanVöxtur í veitingarekstri Jamie Oliver
-
Keppni23 klukkustundir síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni
-
Frétt6 dagar síðanHalla Sif meðal 100 kvenhetja landbúnaðarins
-
Markaðurinn3 dagar síðanNýtt frá Lavazza | Qualità Oro Dark Roast
-
Frétt3 dagar síðanBrikk súkkulaðikaka innkölluð



