Vín, drykkir og keppni
Ölvisholt brugghús; íslenskur bjór vekur athygli í Skandinavíu
Það kannast eflaust flestir bjóráhugamenn á Íslandi við bruggghúsið í Ölvisholti sem framleiðir Skjálfta, Freyju, Móra og Lava ásamt árstíðabundnum bjórum. Síðustu misseri hefur hróður þessarar frábæru framleiðslu borist út fyrir landsteinana. Til að mynda vakti Skjálfti mikla athygli á bjórsýningu í Kaupmannahöfn í fyrra og hlaut fullt hús stiga af dómnefnd dönsku bjóráhugamanna samtökunum sem birtu niðurstöður sínar í danska Extrablaðinu. Þessi jákvæða athygli varð til þess að erlendir dreifingaraðilar fóru að hafa samband.
Fréttaritara Freistingar þyrsti í að vita meira og hafði samband við Jón E. Gunnlaugsson, stjónarformann Ölvisholts brugghúss.
„Það voru ýmsir aðilar sem hvöttu mig til að taka þetta skref enda átti ég stórar og miklar byggingar sem ekkert voru notaðar. Svo fékk ég með mér í þetta nágranna minn Bjarna Einarsson eggjabónda og við hjóluðum í málið af fullum krafti.
Við komumst í kynni við Gourmet Bryggeriet í Danmörku sem gerði okkur tilboð í fullbúna verksmiðju og inní í samningnum var útflutningssamningur við þá. Segir Jón sem kveðst hafa verið mikill bjóráhugamaður allt frá blautu barnsbeini. Næsta skref var svo að ráða bruggmeistara en við vorum svo lánssamir að finna vel menntaðan íslenskan bruggmeistara sem heitir Valgeir Valgeirsson.“
Jón og félagar eru nýkomnir heim af Stockholm Beer & Whiskey Festival þar sem þeir eru orðnir árlegir gestir. Þar vorum við með kynningu á bás hjá okkar dreifingaraðila í Svíþjóð, Wicked Wine. Það fór ekki mikið fyrir okkar bás á sýningunni en smá saman kvisaðist það út að það væri íslenskt brugghús þarna sem væri með frábæran bjór. Það endaði svo með því að seinni helgina hjá okkur á sýningunni var alveg stöðugur straumur á básinn hjá okkur, starfsfólk Systembolaget(Ríkið í Svíþjóð), veitingahúsaeigendur og svo almenningur í restina
Einnig stefnir sænskur bjóráhugahópur á ferð til íslands, gagngert til að heimsækja Ölvisholt eftir að hafa smakkað Lava bjórinn. En Lava, Skjálfti og Móri eru nú þegar komnir í sölu í Svíþjóð ásamt jólabjórnum.
Í október hefst svo sala á Lava í Kanada og allar tegundir Ölvisholts fara í sölu í Danmörku á sama tíma auk þess sem unnið er að markaðsetningui í Noregi.
Þeir félagar stefna svo á aðra bjórsýningu, nú DarkÖl festival í Gautaborg í Svíþjóð þar sem mikil áhersla verður lögð á Lava bjórinn.
Svo hæglega má segja að í nógu sé að snúast, enda vekur það athygli erlendis að tveir bændur á Íslandi séu að brugga bjór í gömlu fjósi sem er fyllilega samkeppnisfær við stór brugghús í Evrópu og Ameríku.
Þetta frábæra framtak gefur gott fordæmi, og sýnir að útflutningsmarkaður fyrir íslenskar sælkeravörur er klárlega til staðar, er góð landkynning og hefur einnig örvandi áhrif á ferðamannaiðnaðinn.
Ragnar Eiríksson skrifar
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanGæti ÓX orðið fyrsti íslenski veitingastaðurinn með tvær Michelin-stjörnur?
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanBrixton tekinn til gjaldþrotaskipta
-
Frétt3 dagar síðanDýrt Búrgúndí-vín fannst á ný eftir furðulegan vínþjófnað
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMichelin-listinn á Íslandi helst óbreyttur, Kadeau fær þriðju stjörnuna
-
Frétt5 dagar síðanEldur kom upp í veitingastað á Selfossi
-
Keppni4 dagar síðanBarþjónar og fagfólk fagna sumrinu með alvöru stemningu
-
Markaðurinn2 dagar síðanNetlagersala Ásbjarnar hafin með allt að 75% afslætti
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanHandverksbjór og matarveisla á Hólum



