Vertu memm

Keppni

Myndir og vídeó – Íslenska Kokkalandsliðið fékk gull fyrir fyrsta keppnisdag

Birting:

þann

Íslenska Kokkalandsliðið fékk gull fyrir fyrsta keppnisdag - Myndir og vídeó

Íslenska Kokkalandsliðið fékk gull fyrir fyrstu keppnisgreinina sem það keppti í á Ólympíuleikunum í Stuttgart í gær. Liðið kom til Þýskalands á fimmtudag og dagurinn en þá voru leikarnir settir. Í dag undirbýr liðið svo næstu keppnisgrein en hún fer fram á morgun.

Keppnisgreinin í gær kallast „Chef’s table“ en þá framreiðir landsliðið 7 rétta matseðil fyrir 12 gesti. Keppnisgrein morgundagsins er það sem kallar er „Restautant of nations” sem er þriggja rétta kvöldverður fyrir 110 gesti. Það er góður andi í hópnum eftir gærdaginn í Stuttgart eru nú saman komnir um það bil fimmtíu aðstandendur og vinir keppanda sem styðja hópinn dyggilega.

Íslenska kokka­landsliðið sam­an­stend­ur af reynslu­miklu keppn­is­fólki og ein­stak­ling­um sem flest eru að fara að keppa á sínu fyrsta stór­móti. Liðstjóri Kokkalandsliðsins í ár er Ísak Aron Jó­hanns­son. Ísak hef­ur verið í landsliðshópn­um síðan 2019. Snæ­dís Xyza Mae Jóns­dótt­ir er landsliðsþjálf­ari hún var liðstjóri í landsliðshópn­um sem náði þriðja sæti á síðustu Ólymp­íu­leik­um árið 2020 en það er besti árangur Íslands til þessa.

Allir fremstu matreiðslumenn heims koma saman á Ólympíuleikum matreiðslu í Stuttgart í Þýskalandi í byrjun febrúar og keppa um stærstu verðlaun keppnismatreiðslu. Íslenska kokkalandsliðið hefur æft stíft undanfarna mánuði í tengslum við keppni þessa og stefnir á verðlaunapall. Ólympíuleikarnir verða settir 3. febrúar nk. og mun íslenska kokkalandsliðið keppa í tveimur greinum. Fyrri keppnisgreinin er „Chef´s table“, tólf manna 11 rétta matseðill og í hinni síðari þarf að afgreiða þriggja rétta matseðil fyrir 110 manns.

Allir fremstu matreiðslumenn heims koma saman á Ólympíuleikum matreiðslu í Stuttgart í Þýskalandi í byrjun febrúar og keppa um stærstu verðlaun keppnismatreiðslu. Íslenska kokkalandsliðið hefur æft stíft undanfarna mánuði í tengslum við keppni þessa og stefnir á verðlaunapall. Ólympíuleikarnir verða settir 3. febrúar s.l. og Íslenska kokkalandsliðið keppir í tveimur greinum. Fyrri keppnisgreinin er „Chef´s table“, tólf manna 11 rétta matseðill og í hinni síðari þarf að afgreiða þriggja rétta matseðil fyrir 110 manns.

Íslenska Kokkalandsliðið fékk gull fyrir fyrsta keppnisdag - Myndir og vídeó

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir landsliðsþjálfari

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir landsliðsþjálfari segir ekkert annað en verðlaunasæti koma til greina. Hópurinn samanstandi af reynslumiklu keppnisfólki sem og einstaklingum sem eru að fara að keppa á sínu fyrsta stórmóti. Snædís hefur lengi verið tengd keppnismatreiðslu en hún tók að sér þjálfun liðsins fyrr á þessu ári.  „Við ætlum okkur alla leið, þessi hópur er tilbúinn að leggja gríðarlega mikið á sig til að ná sem bestum árangri,“ segir Snædís og bendir á að æfingar fari fram aðra hverja viku, þrjá til fjóra daga í senn þar sem hver æfing er um tíu til fjórtán klukkustundir.

Íslenska Kokkalandsliðið fékk gull fyrir fyrsta keppnisdag - Myndir og vídeó

Liðstjóri Kokkalandsliðsins er Ísak Aron Jóhannsson

Hópurinn sem fer til Stuttgart er jafnframt leiddur af Ísaki Aroni Jóhannssyni fyrirliða en hann starfar hjá Zak veitingum og hefur mikla keppnisreynslu. Hann hefur verið í landsliðshópnum síðan 2019.  Hann bar sigur úr býtum í keppninni um eftirrétt ársins 2022 og varð í fjórða sæti í keppninni um kokk ársins sama ár. Aðrir í hópnum eru eftirfarandi: Hugi Rafn Stefánsson, sjálfstætt starfandi, hefur staðið uppi sem sigurvegari í Íslensku nemakeppninni í matreiðslu og verið aðstoðarmaður í Bocuse´dor keppninni.

Úlfar Örn Úlfarsson, sjálfstætt starfandi, hefur keppt í keppninni um Eftirréttur ársins og verið í Bocude´dor teyminu. Erla Þóra Bergmann Pálmadóttir, Fjallkonunni, hefur tekið þátt í keppninni Eftirréttur ársins og verið í kokklandsliðinu síðan 2021 Gabríel Kristinn Bjarnason, Dill, sigraði keppninna Nordic Young Chef 2021 hefur náð þriðja sæti í keppninni um Kokkur ársins og unnið Íslensku nemakeppnina ásamt því að vera aðstoðarmaður í Bocuse´dor  Kristín Birta Ólafsdóttir, Hótel Reykjavík Grand, fyrrum sigurvegari í Íslensku nemakeppninni og tekið þátt í keppninni um Eftirréttur ársins ásamt því að lenda í þriðja sæti á Íslandsmóti iðngreina.

Jafet Bergmann Viðarsson, Torfús Retreat, hefur tekið þátt í keppninni Eftirréttur ársins og Matreiðslunemi ársins. Bjarki Snær Þorsteinsson, Lux veitingar, hefur tekið þátt í keppnunum um eftirrétt ársins, Matreiðslunemi ársins og Nordic Green Chef. Ólöf Ólafsdóttir Head pastry chef – Monkeys, vann í keppninni um eftirrétt ársins 2021

María Shramko, Bakarameistaranum, er reynslubolti í keppnismatreiðslu en hún hefur unnið til fleiri en hundrað verðlauna á stórmótum og er viðurkenndur dómari. Landsliðsþjálfarinn er einnig mikill reynslubolti í faginu en ásamt því að þjálfa landsliðið er Snædís Xyza Mae Jónsdóttir yfirkokkur á Ion Adventure. Hefur hún verið tengd landsliðinu síðan 2016 og var í landsliðshópnum sem náði þriðja sæti á síðustu Ólympíueikum, ásamt því meðal annars að keppa í Kokkur ársins, standa uppi sem sigurvegari í Eftirréttur ársins 2018 og vinna Artic Chef keppnina á Akureyri á þessu ári.

Þórir Erlingsson

Þórir Erlingsson

Þórir Erlingsson forseti Klúbbs matreiðslumeistara, sem á og rekur kokkalandsliðið, segir að miklar væntingar séu gerðar til hópsins. „Hópurinn samanstendur af hæfileikaríku matreiðslufólki með frábæran þjálfara, sem á eftir að ná langt,“ segir Þórir og bætir við að ótrúlegt sé að fylgjast með eljunni og metnaði allra sem að koma, þar sem takmarkið sé að ná á verðlaunapall. „Að vera með landslið sem aftur og aftur sannar sig í að vera meðal þeirra bestu væri ekki hægt nema fyrir frábæran stuðning bakhjarla og styrktaraðila, þeir gera okkur þetta kleift,“ segir Þórir um leið og hann þakkar öllum þeim sem koma að starfi kokkalandsliðsins fyrir þeirra framlag

Ljósmyndir: Ruth Ásgeirsdóttir
Myndskeið: Kokkalandsliðið

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið