Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Makona er nýr veitingastaður við Borgartún 26: Myndir frá opnunarhátíð staðarins
Nýr veitingastaður, Makona, opnaði dyr sínar við Borgartún 26 í Reykjavík þann 22. janúar síðastliðinn og hefur þegar vakið athygli fyrir metnaðarfulla nálgun á mat og þjónustu. Makona býður upp á fjölbreytt hádegisverðarhlaðborð, spennandi kvöldverðarseðil, dögurð, veisluþjónustu og sérhæfða fyrirtækjaþjónustu, þar sem áhersla er lögð á gæði, bragð og hlýlegt andrúmsloft.
Á matseðli Makona má finna allt frá ljúffengum veganréttum til vandaðra kjöt og fiskirétta, ásamt ferskum salötum og nærandi súpum sem ætlað er að næra bæði líkama og sál. Hádegisverðarhlaðborðið er sérstaklega sett saman sem bragðferðalag um heiminn og er borið fram með gæða kaffi, vel völdu víni, spennandi kokteilum og sérbrugguðum bjór.
Hönnun veitingastaðarins er í höndum Basalt Architects, sem hefur starfað frá árinu 2009 og er þekkt fyrir vandaða og nútímalega hönnun hérlendis sem og erlendis. Rýmið endurspeglar hugmyndafræði Makona þar sem litir, efni og stemning vinna saman að heildstæðri upplifun fyrir gesti.
Nafn staðarins, Makona, á rætur að rekja til márísku og merkir „seðjandi“, sem á vel við þá upplifun sem stefnt er að. Opnunarhátíð veitingastaðarins fór fram úr björtustu vonum, þar sem gott andrúmsloft, tónlist, litir og bragð sameinuðust í eftirminnilega matarupplifun sem setti tóninn fyrir starfsemina fram undan.
Myndband
Matseðill vikunnar
Myndir og vídeó: facebook / makona.is
-
Frétt5 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Keppni6 dagar síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Keppni6 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Frétt23 klukkustundir síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Bocuse d´Or7 dagar síðan„Draumurinn hefur alltaf verið að keppa í þessari keppni,“ segir Snædís
-
Nemendur & nemakeppni7 dagar síðanLandslið kjötiðnaðarmanna mætir í MK, opið hús um helgina



















