Vín, drykkir og keppni
Leó Snæfeld keppir fyrir Ísland í World Class barþjónakeppninni
Úrslit eru kunn í barþjónakeppni World Class þar sem Leó Snæfeld frá Jungle kokteilbar tók bikarinn heim. Mikið var um að vera í Iðnó mánudag og þriðjudag þar sem fóru fram þrjár áskoranir í World Class og húsfyllir var af áhorfendum.
Dómarar kvöldsins voru Tim Philips-Johanson sem er sendiherra Johnnie Walker alþjóðlega, Hrefna Sætran frá Fiskmarkaðnum, Jakob Eggertsson sigurvegari síðustu World Class keppni og Jónas Heiðar sem sigraði World Class árið 2017 en þeir hafa verið þjálfarar keppenda í vetur og kynnar kvöldsins voru skipuleggjendur keppninnar Fannar Logi Jóns og Sóley Kristjáns.
Eðalviskíkokteill og pop-up bar
Á mánudag settu átta barþjónar upp pop-up bar þar sem kynntu kokteil gerðan úr dýru eðalviskíi, Johnnie Walker Blue Label með innblæstri frá tísku og list. Gestir fengu miða þar sem þeir gátu valið sinn uppáhalds bar og var þátttakan frábær og húsfyllir allan tímann.
Óvissubox frá Fiskmarkaðnum
Þrír stigahæstu sem kepptu uppi á sviði í Iðnó í gærkvöldi voru Dagur Jakobs frá Apótekinu, Hrafnkell Ingi (Keli) frá Skál! og Leó Snæfeld frá Jungle.
Þeir reiddu fram tvo drykki úr óvissukörfu sem Hrefna Sætran setti saman úr gæða hráefnum sem falla til á Fiskmarkaðnum. Þar mátti finna áhugaverð og óvenjuleg hráefni eins og safann frá súrsuðum sveppum og engifer, flugfiskahrogn, sýróp frá niðursoðnum mandarínum, nori-þara, shichimi sjö-kryddablöndu, safann af kimchi, cantalope melónu, sushi hrísgrjón og sæta maríneringu frá miso.
Barþjónar höfðu klukkustund til að vinna með hráefnin í eldhúsi Iðnó og var virkilega áhugavert að sjá og smakka drykkina sem komu út úr þessari áskorun! Barþjónar gerðu drykki fyrir framan dómnefnd og voru tengdir hljóðnema svo áhorfendur gátu fylgst vel með.
Hraðakeppni – 6 kokteilar á 6 mínútum
Kvöldið náði hámarki í hraðakeppninni þar sem efstu þrír barþjónar fengu pöntun með 6 drykkjum sem þeir vissu ekki fyrirfram. Þeir höfðu 5 mínútur til að undirbúa barinn eftir að sjá pöntunina og síðan hófst tímatakan, 6 mínútur.
Til að gæta jafnræðis fengu allir barþjónarnir sömu drykkjarpöntun og svo áttu dómarar að upplýsa hvort þeir myndu borga fyrir drykkinn eða ekki með grænu eða rauðu flaggi.
ÚRSLIT !
Leó Snæfeld er World Class barþjónn árið 2025 og mun keppa fyrir Ísland í haust í Toronto í Kanada þar sem keppnin fer fram í ár.
Gefin voru verðlaun fyrir barþjóna sem voru efstir í áskorunum og sigraði Martin Cabejsek Don Julio nándaráskorun, Dagur Jakobs frá Apótekinu var stigahæstur með Johnnie Walker Pop-up barinn og Leó vann óvissuboxið og hraðakeppnina.
Myndir: Kuba Skwara
-
Markaðurinn2 dagar síðanRational í 50 ár og árið 2025 metár á Íslandi
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanHótel og matvælaskólinn endurtekur Meistaradaginn með nýrri áherslu
-
Food & fun4 dagar síðanMatarhátíðin Food & Fun fer fram í 23. sinn
-
Markaðurinn5 dagar síðanMánaðartilboð febrúar 2026: kjöt fyrir bolludag, sprengidag og öskudag
-
Markaðurinn3 dagar síðanMyndir: Peter De Wandel heimsótti Garra og kynnti nýjungar frá Ardo
-
Markaðurinn3 dagar síðanBragðmikil taco súpa með cheddar og sýrðum rjóma
-
Markaðurinn2 dagar síðanMinnkum matarsóun
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanÆtti svona saké viðburður líka heima á Íslandi?







