Starfsmannavelta
Launakostnaður og samdráttur setja Carl’s Jr. rekstur á hliðina
Gjaldþrot sérleyfishafa Carl’s Jr. í Kaliforníu hefur vakið athygli vestanhafs, en rekstraraðilinn kennir bæði hækkun lágmarkslauna og erfiðleikum innan vörumerkisins um stöðuna.
Fyrirtækið Sun Gir, sem rekur 59 veitingastaði í Suður-Kaliforníu, óskaði nýverið eftir greiðslustöðvun samkvæmt „Chapter 11“ í Bandaríkjunum sem veitir fyrirtækinu svigrúm til að endurskipuleggja skuldir sínar og vinna að björgunaráætlun.
Í gögnum sem lögð voru fram fyrir dómstól kemur fram að rekstrarvandi hafi hafist fyrir um tveimur árum, þegar lágmarkslaun starfsfólks á skyndibitastöðum í ríkinu voru hækkuð í 20 dollara á klukkustund. Að sögn eigandans, Harshad Dharod, hafi sú breyting haft veruleg áhrif á rekstrarkostnað.
Á sama tíma bendir hann á að vandinn sé ekki einungis utanaðkomandi. Sala Carl’s Jr. hafi dregist saman, markaðssetning verið síður árangursrík og skortur á nýjungum hjá móðurfélaginu haft áhrif. Þá hafi tíðar stjórnendaskiptingar einnig skapað óvissu.

Carl’s Jr. býður upp á kolagrillaða hamborgara, kjúklingasamlokur, morgunverðarrétti, burrito, franskar og aðra skyndibitarétti á matseðli sínum.
Reksturinn hefur verið þungur. Á fyrstu þremur mánuðum ársins nam velta um 19,9 milljónum dala, sem jafngildir um 2,7 milljörðum króna, en tap var um 2 milljónir dala, eða um 275 milljónir króna. Þá kemur fram í dómsgögnum að hluti veitingastaðanna hafi verið í vanskilum gagnvart sérleyfisveitanda, með hættu á að samningum yrði rift.
Carl’s Jr. telur ábyrgðina liggja hjá rekstraraðilanum sjálfum. Í tilkynningu segir að um sé að ræða einstakt tilvik sem tengist fjárhagsstöðu viðkomandi sérleyfishafa.
Móðurfélagið CKE Restaurants hefur sjálft glímt við áskoranir á undanförnum árum. Sala í Bandaríkjunum dróst saman um 6 prósent árið 2025 og fjöldi staða hefur fækkað. Sérleyfishafar reka nær alla staði keðjunnar og hafa tugir veitingastaða verið lokaðir á síðustu misserum.
Launahækkunin í Kaliforníu hefur haft víðtæk áhrif á veitingageirann, þar sem rannsóknir sýna að hún hafi leitt til hækkana á verði, fækkunar vinnustunda og aukins þrýstings á rekstrarafkomu. Þrátt fyrir það er ljóst að vandinn er ekki bundinn við eitt ríki, enda hafa fjölmörg veitingafyrirtæki víða um Bandaríkin farið í greiðslustöðvun á síðustu mánuðum samhliða minnkandi eftirspurn.
Myndir: aðsendar / carlsjr.com
-
Keppni3 dagar síðanBrons hjá Íslandi í bæði framreiðslu og matreiðslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanRúnar snýr aftur á Hótel Holt sem yfirkokkur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanPítsuofninn kominn á GOTT eftir lokun Pítsugerðarinnar
-
Starfsmannavelta6 dagar síðanLamb Street Food og Mat Bar hætta rekstri
-
Íslandsmót barþjóna2 dagar síðanReykjavík Cocktail Week lauk með úrslitum og hátíðarkvöldverði í Gamla Bíó – Myndaveisla
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanKonráð Hilmarsson um Marseille: „Skemmtilegast var að heyra að Ísland væri komið áfram“
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanMyndir frá formlegri opnun á nýjum stað hjá Mat og drykk
-
Frétt6 dagar síðanSmash Style hamborgarar innkallaðir vegna salmonellu




