Markaðurinn
Landsliðsmaður kennir listina að búa til gæðapylsur
Langar þig að læra að gera alvöru gæða pylsur frá grunni? Á þessu verklega námskeiði lærir þú allt ferlið, frá vali á kjöti og réttu fituhlutfalli yfir í fullkomna steikingu og eldun. Þú færð innsýn í fagleg vinnubrögð landsliðs kjötiðnaðar og lærir að búa til alvöru gæða pylsur sem þú getur auðveldlega gert sjálfur heima. Engin fyrri reynsla nauðsynleg, bara áhugi.
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað matreiðslumönnum, matgæðingum, heimakokkum og öllum sem hafa áhuga á góðu hráefni og vandaðri matargerð.
Markmið:
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist hagnýta þekkingu og færni til að útbúa pylsur frá grunni heima hjá sér.
Farið er yfir rétta meðhöndlun hráefnis.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
– Val á kjöti og rétt fituhlutfall
– Hlutverk salts og próteina í farsgerð
– Rétta meðhöndlun og hitastýringu hráefnis
– Kryddun og jafnvægi bragða
– Sprautun í garnir
– Eldun
– Hvernig laga má uppskriftir að eigin smekk
Áhersla er á verklega vinnu og að þátttakendur fari heim með þekkingu sem nýtist strax í eigin eldhúsi.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
– Sett saman eigin uppskrift
– Fullunnið gæða pylsur heima hjá sér
Aðrar upplýsingar:
Kennari á námskeiðinu er landsliðs kjötiðnaðarmaðurinn Hermann S Björgvinsson ásamt félögum sínum í kjötiðnaðarlandsliðinu. Hermann er þrefaldur sigurvegari í Grillpylsu ársins á Kótilettunni BBQ Festival.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Markaðurinn5 dagar síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Frétt4 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Markaðurinn7 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna
-
Markaðurinn6 dagar síðanOstur sem lyktar eins og „sviti og eftirsjá“




