Markaðurinn
Kósýkvöldið reddað: Stökkar kjúklinga tortillur með buffalo sósu
Þessar stökku kjúklinga tortillur, öðru nafni kjúklinga taquitos, eru afskaplega einfaldur og fjótlegur huggulegheitamatur sem smellpassar yfir sjónvarpinu á kósýkvöldi. Ég nota tilbúinn eldaðan kjúkling til að flýta fyrir og eftirleikurinn er leikur einn. Það er mjög gott að bera fram kalda sósu eða sýrðan rjóma til hliðar.
Stökkar kjúklinga tortillur með buffalo sósu og rjómaosti
(Fyrir 4 sem aðalréttur)
350 g eldaður kjúklingur
200 g rjómaostur til matargerðar frá Gott í matinn
100 g rifinn ostur
3-4 msk. sterk buffalo sósa
4 vorlaukar
8 meðalstórar tortilla kökur (eða 12-16 litlar)
1 msk. olía
Salt og pipar
Límóna, kóríander
Sýrður rjómi, gráðosta-, hvítlauks- eða önnur köld sósa eftir smekk
Aðferð:
Hitið ofn í 180 gráður með blæstri.
Rífið kjúklinginn niður eða skerið smátt.
Skerið vorlaukinn smátt.
Blandið kjúklingi, rjómaosti, rifnum osti, buffalo sósu og vorlauk saman í skál og smakkið til með salti og pipar.
Skiptið blöndunni jafnt á tortilla kökurnar og rúllið upp.
Leggið vefjurnar á bökunarplötu, penslið með smá olíu og bakið í 15-20 mínútur eða þar til gullinbrúnar og stökkar.
Berið fram heitar með kaldri sósu að eigin vali, límónubátum og auka buffalo sósu.
-
Frétt2 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Frétt5 dagar síðanUPPFÆRT: Vagninn fundinn! Matarvagni stolið á meðan eigendur tóku á móti nýfæddri dóttur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Keppni4 dagar síðanDublin Meets Reykjavík: Tíu barþjónar mætast í úrslitum í kvöld – Sjáðu myndirnar frá undankeppninni
-
Keppni2 dagar síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Keppni2 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Bocuse d´Or3 dagar síðan„Draumurinn hefur alltaf verið að keppa í þessari keppni,“ segir Snædís
-
Markaðurinn4 dagar síðanMorgunverður í aðalhlutverki þegar Innnes býður í opið hús 19. mars







