Vertu memm

Bocuse d´Or

Íslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille

Birting:

þann

Það styttist óðum í undankeppni Bocuse d’Or sem fer fram í Marseille dagana 15. og 16. mars. Þar mun Snædís Xyza Mae Jónsdóttir keppa fyrir hönd Íslands, en hún er fyrsta konan til að taka þátt fyrir íslenskt lið í þessari virtustu matreiðslukeppni heims.

Á Facebook-síðu íslenska Bocuse d’Or liðsins hafa undanfarið birst skemmtilegar og persónulegar kynningar á keppendum, dómara og þjálfara liðsins.

Fyrsta konan sem keppir fyrir Ísland

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir hefur víðtæka reynslu af matreiðslukeppnum og starfi innan íslenska kokkasamfélagsins. Hún var í níu ár hluti af Kokkalandsliðinu, fyrst sem aðstoðarmaður og síðar sem þjálfari. Á ferli sínum hefur hún einnig tekið þátt í keppnum á borð við Kokkur ársins, Eftirréttur ársins og Arctic Chef þar sem hún vann til fyrsta sætis í síðustu tveimur.

Snædís starfar í dag sem yfirkokkur á veitingastaðnum Fröken Reykjavík, þegar hún er ekki á fullu í undirbúningi fyrir Bocuse d’Or. Hún ólst upp á Dalvík og hefur því frá unga aldri verið í nánum tengslum við sjávarafurðir. Í undirbúningnum fyrir keppnina hefur hún haft sérstakt gaman af því að vinna með nýtt hráefni, meðal annars ferskan smokkfisk sem er skylduhráefni í keppninni í ár.

Að eigin sögn hefur hún mikla ánægju af því að hanna og þróa rétti og getur varið löngum stundum í að velta fyrir sér hvernig best sé að útfæra hugmyndir. Samvinna við liðsfélaga skiptir hana miklu máli. Utan eldhússins hefur hún einnig mikinn áhuga á asískri matargerð og nýtur þess að elda með syni sínum Helga sem aðeins fimm ára gamall sýnir mikla hæfileika í eldhúsinu. Meðal fyrirmynda hennar í bransanum eru Þráinn Freyr Vigfússon og Hafliði Halldórsson.

Í gegnum undirbúninginn hefur Snædís sýnt að hún á fullt erindi á stóra sviðið í Bocuse d’Or. Einbeiting hennar og metnaður eru augljósir á æfingum og verður spennandi að fylgjast með henni í keppnisbúrinu í Marseille mánudaginn 16. mars.

Hér má sjá fréttayfirlit um Snædísi Xyza Mae Jónsdóttur.

Ungur og metnaðarfullur aðstoðarkokkur

Marlís Jóna Þórunn Karlsdóttir

Marlís Jóna Þórunn Karlsdóttir

Aðstoðarkokkur Snædísar er Marlís Jóna Þórunn Karlsdóttir, jafnan kölluð Malla. Hún er frá Siglufirði og fann snemma fyrir miklum áhuga á matargerð. Eftir nám í Menntaskólanum á Akureyri ákvað hún að leggja matreiðslu fyrir sig og er í dag nemi hjá Íslandshótelum þar sem hún starfar á Fröken Reykjavík.

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Malla þegar tekið þátt í nokkrum keppnum, meðal annars Matreiðslunemi ársins, Norrænu nemakeppninni og Eftirréttur ársins þar sem hún hafnaði í öðru sæti.

Henni þykir skemmtilegast við æfingaferlið að þróa rétti frá grunni í samstilltri liðsheild þar sem allir stefna að sama markmiði, að tryggja Íslandi sæti í aðalkeppninni í Lyon árið 2027 og helst á verðlaunapallinum. Hún hefur einnig mikla ánægju af tímaæfingunum, þótt þær séu krefjandi, og verður án efa í sínu rétta umhverfi þegar keppnin hefst.

Eftir langa daga í eldhúsinu gerir hún sér gjarnan glaðan dag með góðri vefju með ýmsu gúmmelaði, þó hrossakjöt sé ekki á hennar matseðli. Hún segir fyrirmyndir sínar vera kokkana sem hún vinnur með hverju sinni og vonast til að þátttaka þeirra Snædísar opni dyrnar fyrir fleiri konur í Bocuse d’Or keppninni.

Hér má sjá fréttayfirlit um Marlís Jónu Þórunni Karlsdóttur.

Reyndur Bocuse kokkur í dómarasæti

Viktor Örn Andrésson

Viktor Örn Andrésson

Íslenski dómarinn í keppninni í ár er Viktor Örn Andrésson, oft kallaður Ofurmúsin, einn reyndasti Bocuse-kokkur landsins.  Hann tók fyrst þátt í keppninni árið 2005 sem aðstoðarkokkur með Ragnari Ómari heitnum.

Viktor lærði matreiðslu á Hótel Sögu og hefur síðan aflað sér mikillar reynslu í keppnismatreiðslu. Hann hefur meðal annars keppt með Kokkalandsliðinu á heimsmeistaramótum og Ólympíuleikum, unnið titlana Kokkur ársins og Kokkur Norðurlanda og hafnaði í fimmta sæti þegar hann keppti sjálfur í Bocuse d’Or árið 2017. Þá hlaut hann einnig verðlaun fyrir besta fiskréttinn.

Hann segir spennuna sem byggist upp síðustu vikurnar fyrir keppni einn skemmtilegasta þáttinn í ferlinu. Þegar hann er ekki að sinna verkefnum tengdum keppninni nýtur hann þess að fá sér klassískan ofnsteiktan kjúkling með frönskum kartöflum og íslenskri kokteilsósu. Meðal fyrirmynda hans í bransanum er Þráinn Freyr Vigfússon sem hann starfaði með í Kokkalandsliðinu á árunum 2010 til 2014.

Hér má sjá fréttayfirlit um Viktor Örn Andrésson.

Þjálfari með víðtæka keppnisreynslu

Sigurður Helgason

Sigurður Helgason

Þjálfari liðsins er Sigurður Helgason, oft kallaður Siggi Helga. Hann þekkir vel til í heimi matreiðslukeppna, en eftir útskrift úr Perlunni árið 2002 var hann valinn í Kokkalandsliðið. Hann keppti í Evrópukeppni Bocuse árið 2016 og í aðalkeppninni í Lyon árið 2017.

Sigurður hefur einnig áður þjálfað íslenska Bocuse d’Or liðið, meðal annars þegar Ísland vann til bronsverðlauna árið 2017. Að hans sögn er ferlið sjálft það skemmtilegasta við Bocuse d’Or, að fylgjast með þróuninni í matreiðslu og sjá keppendur ná markmiðum sínum í gegnum mánuði af æfingum. Sjálf keppnin sé síðan hápunkturinn þar sem allt kemur saman.

Þrátt fyrir mikinn hraða og álag á æfingum er Siggi þekktur fyrir ró og yfirvegun sem skilar sér í trausti og góðum anda innan liðsins. Eftir langa daga í eldhúsinu nýtur hann þess að slaka á með góðri pizzu og eiga stund með syni sínum, þó hákarl og kæstur fiskur fari ekki ofarlega á lista hans.

Hér má sjá fréttayfirlit um Sigurð Helgason.

Með öflugt lið á bak við sig leggur Snædís af stað til Marseille með skýrt markmið. Að tryggja Íslandi sæti í aðalkeppni Bocuse d’Or í Lyon árið 2027 og, ef allt gengur upp, berjast um sæti á verðlaunapallinum.

Veitingageirinn.is verður með puttann á púlsinum í Marseille og heldur lesendum upplýstum um allt það helsta sem gerist í keppninni. Sjá fréttayfirlitið hér.

Myndir: Facebook / Bocuse d’Or Team Iceland

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið