Frétt
Innköllun á salsasósu vegna glerbrots sem fannst í einni krukku
Matvælastofnun varar neytendur við einni framleiðslulotu af Mild Chunky Salsa sósu frá Old Fashioned Cheese (OFC) sem Aðföng ehf. flytur inn vegna glerbrots sem fannst í einni krukku. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna.
Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Old Fashioned Cheese (OFC)
- Vöruheiti: Mild Chunky Salsa
- Geymsluþol: Best fyrir 16-02-2025 ( EXP 16 FEB 2025 )
- Lotunúmer: MCSP 24-047 001
- Strikamerki: 048707444215 Nettómagn: 425 g
- Framleiðandi: Old Fashioned Foods, Inc. Framleiðsluland: Bandaríkin
- Innflytjandi: Aðföng, Skútuvogi 7-9, 104 Reykjavík.
- Dreifing: Verslanir Hagkaupa og Bónuss um land allt.
Neytendur sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki, farga eða fá endurgreitt í verslun þar sem hún var keypt.
Mynd: mast.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Frétt3 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Markaðurinn5 dagar síðanKvöld sem koníaksunnendur bíða eftir
-
Frétt4 dagar síðanGrunur um salmonellu í nautahakki og hamborgurum frá Ferskum kjötvörum
-
Keppni2 dagar síðanSara Rós sigraði í Whitley Neill kokteilakeppninni
-
Markaðurinn5 dagar síðanVinsælustu pizzaáleggin á Íslandi
-
Keppni5 dagar síðanFerð til Ítalíu í verðlaun í pizzakeppni






