Frétt
Ferskur kjúklingur tekinn úr sölu í nokkrum Bónusverslunum
Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af ferskum heilum kjúklingi frá Matfugli ehf. vegna gruns um salmonellusmit. Fyrirtækið hefur í samráði við Matvælastofnun innkallað vöruna.
Eingöngu er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Bónus
- Vörutegund: Heill ferskur kjúklingur og marineraður.
- Framleiðandi: Matfugl ehf, Völuteigi 2, 270 Mosfellsbæ
- Lotunúmer: 011-26-03-5-64
- Dreifing: Bónusverslanir í Hraunbæ (1/1 Bónus heill ferskur) og Smáratorgi, Norðurtorgi, Kjarnagata í Naustahverfi, Reykjanes Njarðvik og Langholti á Akureyri (Bónus 1/1 ferskur marineraður)
Neytendur sem keypt hafa vöruna skulu ekki neyta hennar, farga eða skila til verslunarinnar.
Mynd: úr safni
-
Markaðurinn5 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn6 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn6 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Keppni4 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Keppni1 dagur síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Frétt2 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur




