Markaðurinn
Heimsókn til Stockholms Bränneri fyrir íslenska veitingamenn
Margir íslenskir veitingamenn leggja leið sína til Stokkhólms nú um helgina þar sem Bartenders Choice Awards fer fram. Í tilefni þess hefur DRYKKUR ákveðið að nýta tækifærið og skipuleggja sérstaka heimsókn fyrir íslenska fagmenn í Stockholms Bränneri, mánudaginn 16. mars frá kl. 13.00 til 14.30, áður en úrslit kvöldsins fara fram.
Stockholms Bränneri var stofnað árið 2015 og telst fyrsta kraft-eimingarhúsið í Stokkhólmi. Það var stofnað af hjónunum Calle og Önnu sem hafa byggt upp sterkt vörumerki í anda norrænu handverki. Calle mun taka á móti íslenska hópnum, leiða gesti um framleiðsluna og kynna starfsemi eimingarhússins.
Gestir fá einnig tækifæri til að smakka úrval drykkja frá framleiðandanum. Þar verður meðal annars boðið upp á vörur sem nú þegar eru í vörulínu DRYKKS á Íslandi, auk nýrra og spennandi drykkja sem eru nýkomnir á markað.
Stockholms Bränneri var frá upphafi stofnað með það að markmiði að heiðra norræna arfleifð í drykkjagerð. Framleiðslan byggir á handverki, vandvirkni og vönduðu hráefni sem gefur vörunum sérstöðu í heimi handgerðs gins og annarra eiminga.
Heimsóknin gæti því reynst kærkomið tækifæri fyrir íslenska veitingamenn sem verða staddir í Stokkhólmi vegna Bartenders Choice Awards, bæði til að kynnast starfseminni betur og smakka nýjungar frá framleiðandanum.
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í heimsókninni eru hvattir til að hafa samband með því að senda línu á [email protected].
-
Keppni3 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn7 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Keppni6 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Keppni3 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Frétt4 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Markaðurinn2 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október




