Vertu memm

Markaðurinn

Grillaður lambahryggvöðvi með rabarbara BBQ sósu, grilluðu grænmeti og byggsalati

Birting:

þann

Grillaður lambahryggvöðvi með rabarbara BBQ sósu, grilluðu grænmeti og byggsalati

Hráefni

Rabarbara BBQ sósa
300 gr rabarbari skorinn í bita
1 laukur saxaður
2 hvítlauksgeirar
3 msk matarolía
1 dl tómatsósa
1 dl vatn
1 msk púðursykur 1 msk eplaedik 1 msk Dijon sinnep
1 msk eplaedik
1 msk Dijon sinnep
1 msk Worcestershire sósa Svartur pipar Eldpipar eða eldpiparsósa
Svartur pipar
Eldpiparduft eða sósa

Byggsalat
200 gr íslenskt bygg frá Móður Jörð
Vatn
Salt
½ laukur, skorinn
1/2 eldpipar, sneiddur
1 vorlaukur, sneiddur

Grillað kál
1 nettur kálhaus, hvítkál, toppkál eða rauðkál
½ dl matarolía
1 hvítlauksgeiri
1 msk Ras el Hanout kryddblanda

Grillaður lambahryggvöðvi
1 kg lambahryggvöðvi Garðablóðberg Matarolía Salt Svartur pipar
Garðablóðberg Matarolía Salt Svartur pipar
Matarolía

Leiðbeiningar

Rabarbara BBQ sósa

Svitið lauk, rabarbara og hvítlauk í olíunni á meðalhita í 3-4 mínútur. Bætið við vatni, tómasósu, sykri, ediki, Dijon og Worcestershire sósu. Sjóðið í nokkrar mínútur eða þar til þykknar, smakkið til með ríflegum skammti af svörtum pipar, salti og e.t.v. eldpipar eða eldpiparsósu. Maukið í blandara og geymið í loftþéttu íláti í kæli.

Byggsalat

Byrjið á að setja bygg í pott, bætið við vatni og salti og sjóðið í 15-20 mínútur, þá á enn að vera ögn bit í bygginu eða „al dente“ eins og Ítalir kalla það. Sigtið vatnið frá.

Svitið lauk og eldpipar í olíunni á pönnu og blandið saman við byggið. Smakkið til með salti og e.t.v. sítrónusafa.

Grillað kál og vorlaukur

Saxið hvítlauk og blandið í olíuna ásamt kryddblöndunni, Skerið kálið í passlega báta eftir endilöngu. Penslið olíunni á kálið og leyfið að standa í nokkrar mínútur áður en þið saltið og grillið kálið á öllum hliðum. Setjið á bakka, penslið með olíunni og grillið áfram á óbeinum hita, eða setjið í ofninn þar til kálið er eldað í gegn. Saltið og grillið vorlauk eftir smekk.

Grillaður lambahryggvöðvi

Snyrtið lambið og skerið rákir í fituna, saltið á báðum hliðum, brúnið vel á grillinu, byrjið á fituhliðinni og passið að fitan brenni ekki. Hér er ómissandi að nota hitamæli, og passlegt að taka af grillinu þegar kjarnhiti er kominn í 54°C, þar sem kjarnhitinn heldur áfram að hækka og endar í meðalsteikingu „medium“

Leggið álpappír yfir og hvílið á borðinu í 15 mínútur, kryddið með pipar áður en lambið er borið fram.

Mynd og uppskrift: islensktlambakjot.is

Uppskriftirnar á veitingageirinn.is eru frá fagmönnum og áhugafólki á matargerð sem skilar fjölbreyttar og bragðgóðar uppskriftir til þín. Ef þú lumar á uppskrift sem þú vilt birta á veitingageirinn.is sendu okkur þá uppskriftina ásamt nafni á [email protected]

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið