Frétt
Gert Klötzke með fyrirlestur miðvikudaginn 25. ágúst 2010
Klúbbur Matreiðslumeistara kynnir fyrirlestur haldinn miðvikudag 25. ágúst klukkan 16:00 með hinum virta sænska matreiðslumeistara Gert Klötzke um klassískt hlaðborð fært í nútímabúning og skammtastærðir. Gert skrifaði bókina „The Swedish smorgasbord – all the Original Recipes in Modern Style“ ásamt Niclas Wahlström og hefur bókin fengið frábæra umsögn og verið margverðlaunuð. Í bókinni er sýnt fram á hvernig lækka má verulega hráefniskostnað við klassískt hlaðborð jafnframt því að auka gæðin !
Gert Klötzke er goðsögn í matreiðsluheiminum og er um þessar mundir yfirþjálfari íslenska Kokkalandsliðsins en hann var þjálfari sænska kokkalandsliðsins í rúm 20 ár. Gert Klötzke er prófessor í matreiðslu við Umeå háskóla í Svíþjóð og er virtur alþjóðlegur dómari í matreiðslu.
Félagar KM sem greitt hafa félagsgjöld fá frían aðgang að fyrirlestrinum og hafa forgang að sætum en þurfa fyrir skrá sig í síðasta lagi á sunnudag 22.ágúst.
Aðrir greiða aðeins 2.500 kr fyrir aðgang og geta sent inn skráningar strax og fá svar eftir helgi um það hvort þeir fái laust sæti.
Skráning í netfanginu [email protected] þar sem þarf að taka fram nafn, vinnustað, símanúmer og netfang.
Við hvetjum félagsmenn KM sem og aðra til að nýta sér þetta einstaka tækifæri og skrá sig sem fyrst.
Fyrirlesturinn verður haldinn 25. ágúst á Hótel Hilton Nordica í sal I og hefst kl 16:00 stundvíslega!
Stjórn KM
-
Markaðurinn1 dagur síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Markaðurinn1 dagur síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanNýtt bakarí opnað á Húsavík eftir nokkurra ára hlé
-
Frétt5 dagar síðanBrotist inn í vinsælt sælkerabakarí í Reykjavík
-
Frétt4 dagar síðanÁttu þessa kokteilsósu? Hún hefur verið innkölluð
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Frétt4 dagar síðanStærsti matarviðburður landsins fram undan í Hljómskálagarðinum
-
Frétt7 dagar síðanÁttu þessa grillpönnu? Þá skaltu hætta að nota hana strax


