Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Fyrirhugað að opna hótel og afþreyingarmiðstöð í Þorlákshöfn – Myndir og vídeó

Stefnt er að því að hótelið verði hannað og starfrækt í nánu samstarfi við nærliggjandi golfvöll í Hafnarvík við Leirur í Þorlákshöfn
Sveitarfélagið Ölfus og Íslenskar Fasteignir ehf. hafa undirritað viljayfirlýsingu um fyrirhugaðar framkvæmdir við hótel og afþreyingarmiðstöð í Hafnarvík við Leirur í Þorlákshöfn. Samvkæmt samkomulaginu mun Ölfus úthluta Íslenskum Fasteignum lóð fyrir uppbyggingu fyrir allt að 180 herbergja hótel og afþreyingarmiðstöð auk smáhýsa.
Stefnt er að því að hótelið verði hannað og starfrækt í nánu samstarfi við nærliggjandi golfvöll samkvæmt nánara samkomulagi við Golfklúbb Þorlákshafnar.
Íslenskar Fasteignir munu annast undirbúningsrannsóknir og gerð skipulagstillagna fyrir verkefnið í nánu samráði við sveitarfélagið Ölfus og með hliðsjón af markmiðum og ákvæðum Aðalskipulags Ölfuss.
Stefnt er að því að framkvæmdir við uppbyggingu hótels geti hafist í lok næsta árs og að opnun þess geti orðið vorið 2026.
„Við eins og aðrir þekkjum þá miklu uppbyggingu sem er að eiga sér stað í Ölfusinu, og þá ekki síst Þorlákshöfn. Við höfum kynnt okkur vandlega þessi áform og höfum mikla trú á framtíð þessa svæðis.
Hér eru allar forsendur til að staðsetja hótel og afþreygingarmiðstöð eins og áform okkar standa til, með golfvöllinn, Bláfjöllin og víðernið við andyrið og sjálft Atlantshafið og þessa mögnuðu fjöru í bakgarðinum.
Samstarfið við Sveitarfélagið hefur verið til mikilla fyrirmynda. Kraftur þeirra og stórhugur er hreinlega smitandi og við stefnum að víðtæku samstarfi“.
Segir Björn Gunnlaugsson, verkefnastjóri hjá Íslenskum Fasteignum í fréttatilkynningu.
„Það er stórt skref fyrir okkur og í raun viðurkenning að fá sterkt félag eins og Íslenskar Fasteignir til samstarfs um verkefni sem þetta. Við heimamenn vitum vel að hér eru mikil tækifæri en það er ekki sjálfgefið að fjárfestar og frumkvöðlar hafi þessa sömu sýn. Þau áform sem nú hafa verið undirrituð munu setja Þorlákshöfn á kortið í ferðaþjónustu svo um munar.
Þegar það fer saman með uppbyggingu á nýjum miðbæ, stækkun hafnarinnar, fjölgun íbúa og fjölþættum umhverfisvænum áformum svo sem laxeldi á landi þá verður flestum ljóst að það er vöxtur framundan. Von okkar er því að Íslenskar Fasteignir horfi til áframhaldandi þátttöku hér.“
Segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi.
Vídeó
Myndir: aðsendar
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMichelin-listinn á Íslandi helst óbreyttur, Kadeau fær þriðju stjörnuna
-
Frétt5 dagar síðanDýrt Búrgúndí-vín fannst á ný eftir furðulegan vínþjófnað
-
Markaðurinn4 dagar síðanNetlagersala Ásbjarnar hafin með allt að 75% afslætti
-
Markaðurinn4 dagar síðanHeinz sósur í 33 ml. Hentugt fyrir hótel, gistiheimili og veitingarekstur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanNýr veitingastaður opnar í Mosfellsbæ
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanSjaldgæft vínsafn Stalíns fer á uppboð í Georgíu
-
Vín, drykkir og keppni1 dagur síðanTrump í vínstríði við dyggan stuðningsmann
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 klukkustundir síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu





