Markaðurinn
Spennandi tækifæri í hjarta Kópavogs
Gerðarsafn leitar að rekstraraðila veitingasölu í einstöku umhverfi á besta stað í Kópavogi. Veitingasalan í Gerðarsafni er í sólríkri glerbyggingu á neðri hæð safnsins með beinu aðgengi að skjólgóðu útisvæði sem er vinsæll áfangastaður allt árið um kring.
Gerðarsafn stendur fyrir metnaðarfullri sýningardagskrá með megináherslu á samtímalist í glæsilegri byggingu og sækja um 300.000 gestir menningarstarf svæðisins árlega. Safnið er hluti af fjölskylduvænum menningarkjarna ásamt Salnum tónlistarhúsi, Bókasafni Kópavogs og Náttúrufræðistofu Kópavogs. Útisvæði menningarhúsanna er afar fjölskyldu- og barnvænt, með gosbrunni og fjölbreyttum leiktækjum.
Samhliða veitingasölu í Gerðasafni eru möguleikar á að þróa veitingasölu fyrir tónleika í Salnum Tónlistarhúsi sem og á ráðstefnum og fundum. Spennandi tækifæri fyrir rétta aðila að þróa veitingareksturs í lifandi og skapandi umhverfi.
Þau sem annast veitingarekstur þurfa að:
• Bjóða upp á fjölbreyttar veitingar sem henta starfsemi safnsins.
• Hafa reynslu og hæfni til að sinna veitingarekstri.
• Búa yfir góðri samskiptahæfni og vera fær um að sinna fjölbreyttum hópi gesta.
• Vera tilbúin til að þróa reksturinn í takt við starfsemi safnsins hverju sinni.
Gerðarsafn er opið alla daga kl. 10-17 og er rekstraraðila unnt að hafa opið lengur eftir samkomulagi við leigusala. Hið leigða rými er 75 fermetrar og má gera ráð fyrir að staðurinn taki allt að 76 manns í sæti. Auk þess fylgir hinu leigða rými nýuppgert útisvæði sem er 100 fermetrar og getur rúmað 80 gesti við borð. Eldhúsaðstaðan og húsgögn rýmisins voru uppfærð árið 2020.
Áhugasömum er bent á að hafa samband við Brynju Sveinsdóttir forstöðumann Gerðarsafns fyrir 4. janúar, í gegnum netfangið brynjas(hja)kopavogur.is
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni4 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni4 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn5 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag
-
Frétt2 dagar síðanQR-matseðill uppfyllti ekki reglurnar
-
Frétt4 dagar síðanMálmbiti fannst í skinku frá Stjörnugrís
-
Markaðurinn3 dagar síðanIðan leggur áherslu á samtal við fagfólk á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn3 dagar síðanVissir þú? …að Pappírssalan er ekki bara með pappír?




