Viðtöl, örfréttir & frumraun
Endurreisa 19. aldar bruggverksmiðju í Tékklandi – Myndir

F.v. Tomáš Vodochodský, Edda Björk Jónsdóttir, Milan Starec og Daníel Pétur Daníelsson.
Mynd: Síldarminjasafnið
Fimmtudaginn 18. apríl sl. var National Brewing Museum í bænum Kostelec nad Černými lesy í Tékklandi vígt við hátíðlega athöfn og voru þau Edda Björk Jónsdóttir og Daníel Pétur Daníelsson viðstödd fyrir hönd Síldarminjasafnsins á Siglufirði.
Síðastliðin þrjú ár hefur Síldarminjasafnið átt í samstarfi við safnið, en þar hefur verið unnið þrekvirki við endurreisn 19. aldar bruggverksmiðju sem og alls tækjabúnaðarins sem notaður var til bruggunar. Bruggverksmiðjan var byggð árið 1842.
Afraksturinn er varðveisla dýrmætra menningarminja, húsbygginga og verkþekkingar. Gestir geta nú heimsótt einstakt safn, sem í senn er fullvirk bruggverksmiðja, byggð á tækni og notkun tækjabúnaðar frá því um 1930.
- Hjarta brugghússins, bruggbjallan var byggð upprunalega á árunum 1839-1841.
Verkefninu er nú formlega lokið en það hefur verið gríðarlega umfangsmikið og hlutverk starfsfólks Síldarminjasafnsins sem samstarfsaðila hefur fyrst og fremst verið að veita ráðgjöf um sýningarhönnun og upplifun gesta.
Síldarminjasafnið leggur mikla áherslu á samstarf, bæði innlent og erlent, í starfi sínu. Þannig skapast mikilvægur vettvangur til að miðla þekkingu og reynslu úr héraði og ekki síst til að víkka sjóndeildarhringinn og læra af öðrum.
- Það eru félagarnir Milan Starec og Tomáš Vodochodský sem höfðu veg og vanda af skipulagningu þessa verkefnis. Þeir keyptu bruggverksmiðjuna árið 2001 sem var þá í niðurníðslu.
- Í brugghúsinu finnur þú einnig krá þar sem klassísk tékknesk matargerð ræður ríkjum og að sjálfsögðu er hægt að smakka bjór frá brugghúsinu.
- Í brugghúsinu eru margar litlar sýningar sem tengjast framleiðslu á malti og bruggun ofl.
Myndir úr safninu: www.nmpivovarnictvi.cz
-
Keppni7 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn4 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar4 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Frétt3 dagar síðanKornax innkallar Kanilsnúðaköku
-
Markaðurinn2 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“











