Frétt
Bapao beef innkallað vegna mögulegrar örverumengunar
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur, að beiðni Dai Phat Asian Supermarket, innkallað Bapao beef frá vörumerkinu Tjendrawasih vegna óvissu um öryggi kjöts sem notað var við framleiðslu vörunnar.
Samkvæmt tilkynningu er talið að kjötið sem notað var við framleiðsluna sé ekki öruggt vegna óvissu og er hættan sögð felast í mögulegri örverumengun.
Innköllunin tekur eingöngu til eftirfarandi framleiðslulota:
Vörumerki: Tjendrawasih
Vöruheiti: Bapao beef
Geymsluþol: 6. nóvember 2026, 9. janúar 2027 og 12. febrúar 2027
Framleiðandi: Dutch Bakery Group B.V. (Tjendrawasih), Alkmaar í Hollandi
Framleiðsluland: Taíland
Varan hefur verið seld hjá Dai Phat Asian Supermarket að Faxafeni 14 í Reykjavík.
Neytendum sem hafa keypt vöruna er ráðlagt að neyta hennar ekki. Þeir eru hvattir til að farga vörunni eða skila henni í verslun Dai Phat Asian Supermarket.
Mynd: Reykjavik.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn3 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Markaðurinn3 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn2 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Keppni4 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn5 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins




