Keppni
Auddi Blö og Steindi Jr. verða kynnar á úrslitakvöldi Tipsý Bar
Tólf kokteilar, valdir úr miklum fjölda innsendinga, öttu kappi í forkeppni Tipsý & Martini sem fram fór í gærkvöldi. Að lokinni spennandi keppni stóðu sex frábærir drykkir uppi og tryggðu sér sæti í úrslitum.
Úrslitakvöldið fer fram á Tipsý Bar fimmtudagskvöldið 19. febrúar klukkan 20.00. Þar munu hæfileikaríkir barþjónar etja saman kröftum og reyna að heilla bæði dómnefnd og gesti með útsjónarsemi, fagmennsku og framsetningu.
Kynnar kvöldsins verða þeir Auddi Blö og Steindi Jr., en í gestadómarahlutverki verða Birgitta Haukdal og Sunneva Einars. Þá sér DJ Suzi um tónlistina og lofað er trylltri stemningu fram eftir kvöldi.
Keppendurnir sex sem mættir eru til úrslita eru:
Sara Rós með kokteilinn Italian Flow.
Birkir Tjörvi Pálsson með L’elisir D’amore.
Andri Dagur með Le piccole cose.
Guðjón með Raggio di sole.
Ragnar Erluson með Rossi di Riviera.
Heimir Morthens með Tricolore.
Það er til mikils að vinna. Sigurvegari kvöldsins hlýtur 300.000 króna gjafabréf í ferð til Costa Blanca með Úrval Útsýn.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Það er því um að gera að kíkja við og upplifa spennuna á staðnum þegar besti kokteill kvöldsins verður krýndur.
-
Frétt4 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Keppni5 dagar síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Keppni7 dagar síðanDublin Meets Reykjavík: Tíu barþjónar mætast í úrslitum í kvöld – Sjáðu myndirnar frá undankeppninni
-
Keppni5 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Bocuse d´Or6 dagar síðan„Draumurinn hefur alltaf verið að keppa í þessari keppni,“ segir Snædís
-
Markaðurinn6 dagar síðanMorgunverður í aðalhlutverki þegar Innnes býður í opið hús 19. mars
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanLandslið kjötiðnaðarmanna mætir í MK, opið hús um helgina







