Keppni
Sara Rós sigraði í Whitley Neill kokteilakeppninni

Sara Rós frá Djúsi Sushi bar sigur úr býtum í Whitley Neill kokteilakeppninni með kokteilinn Sweet Heat.
Whitley Neill kokteilakeppnin fór fram í fyrradag í húsakynnum Innnes að Korngörðum 3 í Reykjavík. Alls kepptu 11 barþjónar til úrslita og var það Sara Rós frá Djúsi Sushi sem stóð uppi sem sigurvegari með kokteilinn Sweet Heat.
Keppnin var haldin í samstarfi Barþjónaklúbbsins og Innnes og vakti mikla athygli meðal fagfólks í barþjónageiranum. Keppendur lögðu mikla áherslu á sköpun, bragð og framsetningu og voru kokteilarnir sem bornir voru fram bæði glæsilegir og metnaðarfullir.
Úrslit kvöldsins:
Sara Rós frá Djúsi Sushi hafnaði í fyrsta sæti með kokteilinn Sweet Heat.
Í öðru sæti var Jakob Alf frá Veður með kokteilinn Whitley’s Magic Carpet Ride.
Í þriðja sæti varð Heimir Morthens frá Drykk bar með kokteilinn Nice Pear.
Sköpun og framsetning í forgrunni
Dómnefndina skipuðu Ivan Svan frá Barþjónaklúbbnum, Sigurjón „Sjonni“ sigurvegari keppninnar árið 2024, Kristín Pétursdóttir leikkona og áhrifavaldur og Guðrún Sørtveit áhrifavaldur. Við mat dómnefndar réðu sköpun, bragð og framsetning úrslitum og þótti keppnin bæði jöfn og spennandi.
Í undankeppninni var þemað frjálst en skilyrði var að nota að minnsta kosti 3 cl af Whitley Neill vöru í kokteilnum. Umsóknir voru sendar til Whitley Neill sem valdi þá keppendur sem komust áfram í úrslitin. Alls náðu 11 barþjónar að tryggja sér sæti í lokakeppninni.
Sara Rós fær einstakt tækifæri í London
Vegleg verðlaun voru í boði fyrir efstu sætin. Þar bar hæst ferð til London sem Sara Rós, sigurvegari keppninnar, hlýtur. Þar fær hún tækifæri til að heimsækja Whitley Neill og taka þátt í þróun á eigin gini. Auk þess voru Whitley Neill vörur í verðlaun ásamt glæsilegum eignabikar.
Meðfylgjandi myndir tók ljósmyndarinn Toggi.
- Þorgeir frá 27 mathus
- Victoria frá Hjá Höllu
- Sindri frá Bingó
- Ragnar frá Lólu
- Leó frá Jungle
- Kría frá Tres Locos
- Jakob frá Veður
- Ísar Bjarki frá Sushi social
- Heimir frá Drykk Bar
- Auður frá Jungle
Myndir: Toggi.
-
Keppni5 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn4 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni4 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni3 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt6 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Nemendur & nemakeppni7 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði















