Viðtöl, örfréttir & frumraun
Veitingastaðir í Texas í fyrsta sinn í Michelin matarhandbókinni – Borga 38 milljónir til Michelin
Veitingastaðir í Texas eiga nú von á heimsókn frá Michelin eftirlitsmönnum, en er þetta í fyrsta sinn sem Michelin matarhandbókin kemur út í Texas og munu eftirlitsmenn Michelin heimsækja fimm borgir í fylkinu: Austin, San Antonio, Houston, Dallas, og Fort Worth.
Endanlegur listi yfir veitingastaði í Texas sem hljóta eina, tvær eða þrjár stjörnueinkunnir verður tilkynntur síðar á þessu ári.
Texas veitingamannasamtökin eru að vonum ánægð með að sjá Michelin-handbókina í Texas;
„Við hlökkum til að vinna með Michelin-handbókinni“.
segir Emily Williams, formaður samtaka veitingamanna í Texas.
„Matreiðslusenan í Texas er áhugaverð, heimaræktað hráefni og mikill metnaður í veitingageiranum og ekki má gleyma frægu BBQ grillin í Texas-stíl.“
Segir í tilkynningu frá Michelin.
Það verður áhugavert að sjá hvað margar BBQ búllur verða á Michelin listanum.
Ferðamálastofan í Houston lét hafa eftir sér að hún borgar tæpar 38 milljónir ísl. kr. að veitingastaðir í Houston verði í Michelin handbókinni.
„Þegar réttu tækifærin gefast, eins og Michelin, Top Chef og James Beard, þá er ekkert annað í boði en að stökkva á tækifærin.“
Segir Holly Clapham-Rosenow, framkvæmdastjóri Ferðamálastofunnar
Á undanförnum árum hefur Michelin verið að víkka út leitarsvæðið eftir góðum veitingastöðum í Bandaríkjunum. Síðastliðin þrjú ár hafa Michelin eftirlitsmenn farið í fyrsta skiptið til Flórída (2022), Atlanta (2023) og Colorado (2023) og að auki gaf Michelinhandbókin út sína fyrstu útgáfu í Mexíkó í maí 2024.
Michelin matarhandbókin var gefin fyrst út árið 1900 sem almennur leiðarvísir í Frakklandi til að hvetja ökumenn (sem helst notuðu dekk fyrirtækisins) til heimsækja veitingastaðina í handbókinni.
Fljótlega stækkaði leitarsvæðið eftir góðum veitingastöðum um alla Evrópu, en gerði síðan hlé vegna fyrri heimsstyrjaldarinnar, hófst aftur eftir stríðið og fór að lokum yfir í að einbeita sér að fínum veitingastöðum árið 1926. Þriggja stjörnu einkunnakerfið var fullgert árið 1931.
Michelin býður einnig upp á önnur einkunnakerfi, en það eru grænar stjörnur sem er fyrir sjálfbæra og/eða vistvæna veitingastaði og Bib Gourmands en þau verðlaun eru fyrir veitingastaði sem bjóða uppá hágæða mat á hóflegu verði.
Myndir: úr safni
-
Keppni23 klukkustundir síðanÍslandsmeistari í kokteilagerð náði 3. sæti á Evrópumótinu á Kýpur
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanEyþór Ás, sonur forseta KM, sækir matreiðslunám alla leið norður til Akureyrar frá Selfossi
-
Keppni3 dagar síðanRóbert Aron Proppé keppir fyrir Íslands hönd á Evrópumótinu í kokteilagerð
-
Markaðurinn23 klukkustundir síðanViltu starfa sem kokkur hjá Fosshóteli Reykholti?
-
Keppni3 dagar síðanBæði íslensku liðin mæta til leiks á fyrsta degi heimsmeistarakeppninnar
-
Markaðurinn3 dagar síðanFosshótel Jökulsárlón leitar að kokki í fullt starf
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÍsak Aron kynnir íslenskan mat á þriggja daga menningarhátíð í Seattle
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan„Ómetanlegt að vita hvaðan maturinn kemur“ sagði Dóra. Um 100 manns á stefnumóti á Flúðum – Myndir









