Freisting
Fjöldi þorrablóta haldinn í kvöld á Vestfirðum
Fjöldinn allur af þorrablótum fór fram á Vestfjörðum í kvöld. Hnífsdælingar halda sitt þorrablót í 58. sinn og voru 150 manns búnir að panta miða í dag. Þorrablót Hnífsdælinga hefur einungis fallið niður tvisvar sinnum frá upphafi árið 1947. Í fyrra skiptið var það árið 1949 vegna samkomubanns sem mun hafa verið lagt á vegna smitandi veikindafaraldurs. Seinna skiptið var 2003 þegar það féll niður vegna veðurs.
Stútungur verður haldinn í 72. sinn á Flateyri í kvöld. Þar er nánast upppantað og mikil eftirvænting í loftinu. Skemmtinefndin lofar góðri dagskrá og segir engan óhultan fyrir föstum skotum frá þeim. Hólmvískar konur sjá um þorrablótið þar í bæ í kvöld eins og venja er. Karlarnir launa svo greiðann og sjá um góufagnað þann 18. mars.
Á Bíldudal er metþátttaka á blótinu sem fram fór í kvöld. M.a. ætlar fjöldi brottfluttra Arnfirðinga að mæta og skemmta sér í sínum gamla heimabæ og mun dansinn duna þegar Farfuglarnir stíga á svið.
Þá mun Bolvíkingafélagið í Reykjavík halda sitt 12. blót í kvöld. Þar verða leynigestir, happdrætti og fjöldasöngur svo fátt eitt sé nefnt.
Greint frá á vestfirska vefnum bb.is
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanObo diner opnar brátt á Egilsstöðum með nýju yfirbragði
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanReynsluboltar úr veitingageiranum opna kokteilbar á Hverfisgötu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel18 klukkustundir síðanAtli Snær og Einar Örn opna Chikin á Akureyri
-
Starfsmannavelta7 dagar síðanReksturinn náði ekki nægri veltu
-
Starfsmannavelta6 dagar síðanSt Leonard’s lokar eftir fimm ára rekstur
-
Markaðurinn3 dagar síðanKúmenosturinn er kominn aftur og færir íslenskri matarhefð nýtt líf
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanSticks’n’Sushi fór yfir 18 milljarða króna í veltu
-
Frétt7 dagar síðanBapao beef innkallað vegna mögulegrar örverumengunar


