Vertu memm

Markaðurinn

Kaffi Hleðslan snýr aftur!

Birting:

þann

Í maímánuði kynnti Mjólkursamsalan til leiks sérstaka Sumar Hleðslu en um var að ræða próteinríkan kaffidrykk úr íslenskri mjólk og kaldbrugguðu kaffi (e. cold brew coffee). Eins og nafnið gefur til kynna var þar á ferð sérstakur sumardrykkur og lagt upp með að um tímabundna vöru væri að ræða. Sumar Hleðslan hvarf því úr hillum verslana í lok sumars en síðan þá hefur rignt yfir fyrirspurnum og óskum um að fá drykkinn aftur á markað. Mjólkursamsalan er að vonum þakklát fyrir þessar frábæru viðtökur og getur glatt unnendur kaffi Hleðslunnar með þeim gleðifréttum að drykkurinn er á leið í verslanir á ný.

Kaffi Hleðslan snýr aftur nú í lok október og er vert að geta þess að ein ferna af próteinkaffinu góða inniheldur 22 g prótein og 100 mg koffín úr 100% Arabica baunum frá Eþíópíu. Saman mynda kaffið og próteinrík mjólkin silkimjúka og bragðmilda kaffiblöndu sem enginn Hleðslu- eða kaffiunnandi ætti að láta framhjá sér fara.

Skoða nánar hér.

Ef þú hefur áhuga á að auglýsa hér á veitingageirinn.is, hafðu þá samband við okkur á netfangið [email protected] og við sendum til baka allar upplýsingar. ... smellið hér til að lesa fleiri fréttir og tilkynningar frá styrktaraðilum vefsins.

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið